Fagna nýju frumvarpi um Þjóðaróperu Lovísa Arnardóttir skrifar 20. febrúar 2024 08:34 Gissur Páll Gissurarson, óperusöngvari, er einn þeirra sem skrifar undir yfirlýsinguna. Stöð 2 Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi, Klassís, fagnar þeim merka áfanga í sögu sönglistar á Íslandi að fram sé komið frumvarp um Þjóðaróperu. Félagið lýsir eindregnum stuðningi við áform Lilju D. Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarráðherra, í frumvarpinu.
Undir yfirlýsinguna skrifa þau Andri Björn Róbertsson, gjaldkeri, Edda Austmann Harðardóttir, meðstjórnandi, Gissur Páll Gissurarson, talsmaður og kynningarfulltrúi, Guja Sandholt, meðstjórnandi og Þóra Einarsdóttir, formaður. „Klassís bindur miklar vonir við að frumvarp þetta verði að lögum sem fyrst. Enda hefur það lengi verið eitt helsta keppikefli innan óperugeirans á Íslandi að tryggja starfsgrundvöll söngvara eða allt frá því að Ragnhildur Helgadóttir lagði fram þingsályktunartillögu um fastráðningar söngvara við Þjóðleikhúsið fyrir tæpum 70 árum,“ segir í yfirlýsingu frá félaginu. Þá fagnar félagið því einnig að með frumvarpinu verði óperulistin lögbundið sviðslistaform til jafns við leiklist og danslist. „Með samlegð við Þjóðleikhús skapast grundvöllur til samfelldrar starfsemi, fastráðninga söngvara, fjölbreyttra atvinnutækifæra fyrir söngvara og ýmsa aðra hópa listamanna og spennandi möguleikar til nýsköpunar og framþróunar óperulistformsins, sem mun loks njóta jafnræðis á við leiklist og danslist.“ „Einhvern tímann þurftum við að taka þetta skref,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra um fyrirhugaða Þjóðaróperu í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Ráðuneyti hennar birti í gær í samráðsgátt stjórnvalda frumvarpsdrög um stofnun Þjóðaróperu. Áformað er að Þjóðarópera taki til starfa innan Þjóðleikhússins og óskað eftir því að varanlegt fjármagn til óperustarfsemi aukist um 600 milljónir króna áföngum og verði samtals 800 milljónir króna árlega að núvirði frá og með árinu 2028. Menningarslys Pétur J. Eiríksson stjórnarformaður Íslensku óperunnar gagnrýndi framkvæmdina í viðtali við Vísi í gær. Sagði hann meðal annars að ríkisstjórnin hafi ekki lagt til nægt fjármagn svo að hægt væri að halda starfi Íslensku óperunnar áfram þar til Þjóðarópera yrði stofnuð.
Íslenska óperan Leikhús Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Menning Þjóðaróperan Tengdar fréttir Sundrung og samskiptaleysi hafa staðið Óperunni fyrir þrifum „Slysið er ef Íslenska óperan er lögð af vegna fjárskorts áður en framtíðin hefur verið mótuð og það myndast þarna eyða í starfseminni sem er mjög erfitt að brúa seinna, fá aftur þá áhorfendur sem eru vanir að koma á sýningar og venjast því að þær séu ekki til staðar.“ 5. október 2023 08:06 Óperudraugurinn: Tekist á um framtíð óperunnar á Íslandi Stefnt er að því að ný þjóðarópera taki til starfa árið 2025 en hún mun taka við því menningarhlutverki sem Íslenska óperan hefur sinnt hingað til. Ekki eru allir á eitt sáttir við áformin. 29. september 2023 12:02 „Við erum ekki að biðja um neina aukningu“ Óperustjóri Íslensku óperunnar segir stofnunina ekki vera að biðja um meira en hún hefur áður fengið. Upphæð sem menningar- og viðskiptaráðuneyti nefndi í gær sé misvísandi og dugi ekki til að halda rekstrinum gangandi. 16. ágúst 2023 12:00 Upphæð ráðuneytisins dugi ekki Íslenska óperan segir að sú upphæð sem menningar- og viðskiptaráðuneytið segir að komi til stofnunarinnar fyrir rekstur í ár og á næsta ári muni ekkki duga til að halda stofnuninni starfandi. Íslenska óperan muni óhjákvæmilega leggjast af löngu áður en eitthvað annað geti tekið við. 16. ágúst 2023 09:37 Ekki verði skrúfað fyrir fjárframlög fyrr en framtíðin er mótuð Menningar- og viðskiptaráðuneytið segir að fjárframlögum til Íslensku óperunnar verði ekki hætt áður en búið verður að móta framtíð óperustarfsemi á landinu. Íslenska óperan birti í dag áskorun til ríkisstjórnarinnar þar sem kom fram að stofnunin neyðist til að hætta starfsemi vegna niðurskurðar. 15. ágúst 2023 15:32 Íslenska óperan muni neyðast til að hætta starfsemi Rekstrarframlögum til Íslensku óperunnar verður hætt að því fram kemur í áskorun frá stjórn stofnunarinnar. Að því er fram kemur í áskoruninni er niðurskurðurinn svo mikill að stofnunin sér ekki annað í stöðunni en að hætta starfsemi. 15. ágúst 2023 14:15 Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Fleiri fréttir „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sjá meira
Sundrung og samskiptaleysi hafa staðið Óperunni fyrir þrifum „Slysið er ef Íslenska óperan er lögð af vegna fjárskorts áður en framtíðin hefur verið mótuð og það myndast þarna eyða í starfseminni sem er mjög erfitt að brúa seinna, fá aftur þá áhorfendur sem eru vanir að koma á sýningar og venjast því að þær séu ekki til staðar.“ 5. október 2023 08:06
Óperudraugurinn: Tekist á um framtíð óperunnar á Íslandi Stefnt er að því að ný þjóðarópera taki til starfa árið 2025 en hún mun taka við því menningarhlutverki sem Íslenska óperan hefur sinnt hingað til. Ekki eru allir á eitt sáttir við áformin. 29. september 2023 12:02
„Við erum ekki að biðja um neina aukningu“ Óperustjóri Íslensku óperunnar segir stofnunina ekki vera að biðja um meira en hún hefur áður fengið. Upphæð sem menningar- og viðskiptaráðuneyti nefndi í gær sé misvísandi og dugi ekki til að halda rekstrinum gangandi. 16. ágúst 2023 12:00
Upphæð ráðuneytisins dugi ekki Íslenska óperan segir að sú upphæð sem menningar- og viðskiptaráðuneytið segir að komi til stofnunarinnar fyrir rekstur í ár og á næsta ári muni ekkki duga til að halda stofnuninni starfandi. Íslenska óperan muni óhjákvæmilega leggjast af löngu áður en eitthvað annað geti tekið við. 16. ágúst 2023 09:37
Ekki verði skrúfað fyrir fjárframlög fyrr en framtíðin er mótuð Menningar- og viðskiptaráðuneytið segir að fjárframlögum til Íslensku óperunnar verði ekki hætt áður en búið verður að móta framtíð óperustarfsemi á landinu. Íslenska óperan birti í dag áskorun til ríkisstjórnarinnar þar sem kom fram að stofnunin neyðist til að hætta starfsemi vegna niðurskurðar. 15. ágúst 2023 15:32
Íslenska óperan muni neyðast til að hætta starfsemi Rekstrarframlögum til Íslensku óperunnar verður hætt að því fram kemur í áskorun frá stjórn stofnunarinnar. Að því er fram kemur í áskoruninni er niðurskurðurinn svo mikill að stofnunin sér ekki annað í stöðunni en að hætta starfsemi. 15. ágúst 2023 14:15