Bjóða níræðum ókeypis flug Vésteinn Örn Pétursson skrifar 21. febrúar 2024 18:07 Félagið fagnar 90 árum á árinu. Artur Widak/NurPhoto via Getty Í ár eru 90 ár frá stofnun norska flugfélagsins Widerøe. Af því tilefni hafa forsvarsmenn félagsins ákveðið að bjóða fólki fæddu 1934 frítt flug.
Þetta kemur fram á vefsíðu flugfélagsins, þar sem saga þess er rakin. „Frá því að vera félag sem lagði áherslu á stuttar flugferðir hefur Widerøe vaxið og orðið stór leikmaður í alþjóðaflugi,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins. Þrátt fyrir það sé Noregur enn hluti af kjarna félagsins, sem sé með yfir 40 áfangastaði við Noregsstrendur. Félagið var stofnað 19. febrúar 1934 og fór jómfrúarflug sitt 18. júní sama ár. Þá var flogið frá Osló til Haugesund, með viðkomu í Kristiansand og Stafangri. Um hina ókeypis flugferð fyrir jafnaldra flugfélagsins gilda ákveðnir skilmálar. Um er að ræða flug báðar leiðir fyrir fólk sem fætt er árið 1934, og níræðir geta aðeins nýtt sér tilboðið á almanaksárinu 2024. Þá er ekki hægt að breyta ferð sem bókuð hefur verið, en bóka þarf ferðir minnst 30 daga fram í tímann. Eins geta jafnaldrar félagsins aðeins nýtt sér tilboðið einu sinni, og fljúga því ekki frítt allt árið.
Noregur Fréttir af flugi Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira