Klopp: Við verðum að fara varlega með Salah Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2024 12:01 Mohamed Salah er kominn aftur eftir meiðsli en hann var fljótur að meiðast aftur síðast. Liverpool mun því fara varlega með hann. Getty/Nick Taylor Mohamed Salah er byrjaður að æfa á ný með Liverpool en það er ljóst að Jürgen Klopp ætlar ekki að taka neina áhættu með hann.
Salah hefur verið að glíma við tognun aftan í læri. Hann meiddist í Afríkukeppninni í janúar og svo aftur eftir að hann byrjaði að spila á nýjan leik. Salah gæti tekið þátt í fyrri leik Liverpool á móti Sparta Prag í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Klopp var spurður út í hann á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Mo Salah ferðaðist með okkur. Hann er búinn að æfa með okkur í tvo daga og er fullur af orku,“ sagði Jürgen Klopp. "So good that he's back" Jurgen Klopp on Mohamed Salah's return to the Liverpool squad pic.twitter.com/Zh0HcKrp5E— Sky Sports News (@SkySportsNews) March 7, 2024 „Við viljum fara varlega en það er mikið í gangi hjá okkur á þessum tímapunkti á tímabilinu. Við viljum nota hann og þetta eru því góðar fréttir,“ sagði Klopp. Salah hefur skorað nítján mörk í öllum keppnum á leiktíðinni en hefur ekki spilað síðan 17. febrúar þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði í 4-1 sigri á Brentford. „Það var óheppilegt eftir að hann var búinn að vera svona lengi frá. Hann átti ótrúlegan leik á móti Brentford en svo datt hann út. Svona er þetta bara,“ sagði Klopp. Klopp segir að það sé ekki hans ákvörðun hvort Salah taki þátt í komandi landsleikjaglugga. „Það er ákvörðun sem verður tekinn annars staðar. Sjáum til hversu mikið hann getur spilað með okkur núna. Ég kem ekki nálægt þeirri ákvörðun,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Fótbolti Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Sjá meira