Englandsmeistarar Manchester City tóku á móti toppliði Arsenal í einum af stærstu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. Leikurinn varð því miður ekki sú flugeldasýning sem margir höfðu vonast eftir.
Gestirnir í Arsenal vörðust mjög vel í leiknum. City-liðar héldu boltanum mun meira en sköpuðu sér ekki eitt einasta hættulegt færi. Raunar gerði Arsenal það ekki heldur en xG stuðullinn hjá báðum liðum var undir einum.
Arsenal-menn lágu aftarlega á vellinum, vörðust vel og voru skipulagðir og beittu skyndisóknum þegar þeir gátu, en þeir náðu aðeins að skapa sér eitt marktækifæri í seinni hálfleik meðan City-menn dútluðu sér í hálffærum.
Netverjar gáfu innbyrðis spili City í það minnsta ekki háa einkunn.
Hvort er meira spennandi að horfa á?
— Hrafn Kristjánsson (@ravenk72) March 31, 2024
Niðurstaðan sanngjarnt 0-0 jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið en Liverpool er án vafa sigurvegari dagsins í toppbaráttunni, einir á toppnum með 67 stig, tveimur stigum á undan Arsenal og þremur á undan City.