Það sem einkennir vörumerkið er hið einstaka innihaldsefni Koishimaru Silk sem er að finna í öllum vörurm frá SENSAI. Silki getur gefið allt að sjö sinnum meiri raka en nokkur annar rakagjafi úr náttúrunni.
Söguna má rekja aftur til ársins 1887 þegar megin starfsemi fyrirtækisins í Japan var að framleiða silki. Það vakti forvitni forstjórans að húðin á höndum kvennanna sem var einstaklega slétt og silkimjúk og var það síðar rakið til áhrifa frá silkiþræðinum. Í framhaldinu hófu forsvarsmenn SENSAI áralangar rannsóknir á silki og áhrifum þess. Þeir framleiddu sína fyrstu snyrtivöru Savon De Soie árið 1936.

Það hefur ætið verið stefna SENSAI að gæta að líftíma vörunnar allt frá framleiðslu að til förgunar.
SENSAI hefur til að mynda boðið upp á áfyllingar, á vinsælar förðunarvörum eins og einum mest selda púðurfarða SENSAI, Total Finish sem kemur nú endurbættur á þessu ári. Þannig gæti viðskiptavinur sem keypti sér Total finish púður og öskju fyrir 30 árum síðan ennþá átt sína öskju því þó SENSAI hafi uppfært útlit öskjunnar og endurbætt formúlu Total Finish þá hefur stærðin á fyllingunni haldist sú sama frá upphafi.
Dagana 4.-10. apríl eru allar vörur frá Sensai á 20% afslætti í verslunum hagkaups og á hagkaup.is. Vörurnar hafa notið mikilla vinsælda meðal viðskiptavina Hagkaups en ein vinsælasta varan frá merknu er án efa Sensai Bronzing gel sem er líklega til í ansi mörgum snyrtitöskum á Íslandi.