Skoðun

Mætum á Austur­völl á morgun

Sigmar Guðmundsson skrifar

Það er góðra gjalda vert að heilbrigðisráðherra hafi skipað tvo starfshópa til að bregðast við fíknivandanum. Annar hópurinn á fjalla um skaðaminnkun og skila af sér fljótlega. Hinn hópurinn á að uppfæra stefnu stjórnvalda í málaflokknum en stefnan sem var í gildi rann út árið 2020. Sú vinna á að skila sér í haust. Mjög gott og þarft.

Mér finnst hins vegar brýnt að benda á að þrátt fyrir að beðið sé eftir niðurstöðum liggur alveg fyrir að sumt getum við gert strax. Við gætum stofnað tíu starfshópa til viðbótar og þeir myndu allir komast að þeirri niðurstöðu að það sé algerlega ótækt að þau meðferðarrými sem við eigum í dag séu ekki keyrð á fullum afköstum. Þannig er staðan núna. Sjúkrahúsið Vogur er ekki að nýta öll rýmin sem þar eru. Og það stefnir líka í að meðferðarstöðin Vík þurfi að loka í sumar. Þetta er vegna fjárskorts eins og vel þekkt er. Starfshópur sem skilar af sér í haust mun ekki leysa þetta og á meðan þjáist veikt fólk og sumir deyja. Svo einfalt og sorglegt er það.

Þótt ótal margt hafi breyst til batnaðar gagnvart viðhorfi almennings og stjórnmálanna gagnvart þessum sjúkdómi er enn óskaplega langt í land. Aukin skilningur, velvilji og fögur fyrirheit duga skammt ef fjármagni er skammtað úr hnefa og úrræðin of fá og einhæf. Þessu þurfum við að breyta og það er sameiginlegt verkefni fjölskyldna, atvinnulífs, sveitarfélaga og ríkisins. Sameiginlegt verkefni okkar allra. Og við verðum að skilja að þótt markmiðið sé að bjarga mannslífum og veita fólki sjálfsagða heilbrigðisþjónustu, að fjármagni sem varið er þetta risavaxna verkefni mun skila sér til baka og rúmlega það. Afleidd áhrif af sjúkdómnum á samfélagið allt eru nefnilega svo mikil að kostnaður hríslast um öll kerfin okkar og alla anga samfélagsins. Það er svo dýrt að gera of lítið.

Nýstofnuð samtök aðstandenda og fíknisjúkra hafa látið til sín taka á síðustu mánuðum. Þar er farvegur fyrir baráttu sem vonandi skilar sér í raunverulegum umbótum. Síðdegis á morgun verður þess krafist á Austurvelli, fyrir tilstuðlan samtakanna, að ríkisstjórnin hlusti á neyðaróp þeirra sem eiga um sárt að binda vegna sjúkdómsins. Þess er krafist að SÁÁ, Hlaðgerðarkot, Krýsuvík og Frú Ragnheiður fái það fjármagn sem til þarf í rekstur þeirra. Einnig að samið verði við SÁÁ þannig að viðhaldsmeðferð vegna ópíóðafíkn verði að fullu greidd af ríkinu. Þá er þess krafist að Foreldrahús geti haldið sínum rekstri áfram en það er eina opna úrræðið fyrir foreldra með börn í fíknivanda.

Ég vona að við sjáum okkur sem flest fært að mæta á Austurvöll á morgun klukkan 16. Málefnið þolir enga bið því fólk deyr á biðlistum.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×