Nýr ráðherra þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. apríl 2024 14:48 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. vísir/vilhelm Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, verðandi matvælaráðherra, þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar boðið kom um að taka við matvælaráðuneytinu. Hún þekki vel til málaflokksins og hokin af reynslu.
Breytingar á ráðherraskipan í ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar var kynnt á blaðamannafundi formanna Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í Hörpu klukkan 14. Bjarni Benediktsson fer úr utanríkisráðuneytinu í forsætisráðuneytið, Sigurður Ingi Jóhannsson úr innviðaráðuneytinu í fjármálaráðuneytið og Svandís Svavarsdóttir úr matvælaráðuneytinu í innviðaráðuneytið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð fer aftur í utanríkisráðuneytið eftir hálft ár í fjármálaráðuneytinu. Bjarkey kemur svo inn í matvælaráðuneytið fyrir Svandísi. Rúmur áratugur á þingi Bjarkey segir Guðmund Inga hafa komið að máli við sig rétt fyrir þingflokksfund á ellefta tímanum í morgun og borið upp þetta erindi við sig. Hún hafi ekki þurft að hugsa sig lengi um. „Nei, ég þurfti ekkert að gera það. Ég hef setið lengi á þingi og hef talsverða reynslu,“ segir Bjarkey sem hefur setið í atvinnuveganefnd en víkur þaðan við þessi ráðherraskipti enda ekki hefð fyrir því að ráðherrar sitji í nefndum þingsins. Hún segir mikilvægt fyrir Vinstri græn að fá matvælaráðuneytið og hún ætli að halda áfram með þau góðu mál sem hafi verið unnin af Svandísi. „Þetta er stórt ráðuneyti með sjávarútveg, land og skóg undir. Það er mikilvægt að vel sé hlúð að þessum málaflokkum.“ Ekkert gefið með samstarf Hún segir alls ekki hafa verið gefið að flokkarnir héldu áfram samstarfi sínu. Kæmust að samkomulagi þar um. „Nei nei, það er aldrei neitt gefið í pólitíkinni eins og þú veist. En það var alltaf einhugur um að leggja af stað í þetta áfram,“ segir Bjarkey. Klára verkefnið sem hófst í raun fyrir sjö árum þegar flokkarnir þrír mynduðu ríkisstjórn sem endurnýjaði umboð sitt fyrir þremur árum. Hún segir engan málaflokk brenna á henni umfram annan í matvælaráðuneytinu. Hún þurfi að kynna sér það þegar hún mæti þangað. Þar sé að líkindum meira undir en fólk geri sér grein fyrir. Þá vill hún ekki tjá sig sérstaklega um umdeild mál sem heyra undir ráðuneytið að svo stöddu, svo sem hvalveiðar. Alla hrókeringar í ríkisstjórn eru komnar til af brotthvarfi Katrínar Jakobsdóttur úr stól forsætisráðherra en Katrín gefur kost á sér til forseta Íslands. Bjarkey líst mjög vel á framboðið. „Mjög vel - mín kona!“ Flutti ung norður Bjarkey er fædd í Reykjavík í febrúar 1965, dóttir Gunnars Hilmars Ásgeirssonar vélstjóra og Klöru Björnsdóttur matráðs. Hún er Siglfirðingur en hefur verið búsett á Ólafsfirði frá sextán ára aldri. Hún er gift Helga Jóhannssyni þjónustustjóra og á þrjú börn komin í fullorðinna manna tölu. Bjarkey var í oddvitaáskoruninni á Vísi árið 2021. Nánar um feril Bjarkeyjar að neðan upp úr ágripi á vef Alþingis. B.Ed.-próf KHÍ 2005 með áherslu á upplýsingatækni og samfélagsgreinar. Diplóma í náms- og starfsráðgjöf HÍ 2008. Almannatryggingafulltrúi og gjaldkeri á sýsluskrifstofu Ólafsfjarðar 1988–1991. Stýrði daglegum rekstri og skrifstofuhaldi Vélsmiðju Ólafsfjarðar 1989–2005. Rak Íslensk tónbönd 1994–1999. Leiðbeinandi við Barnaskóla Ólafsfjarðar 2000–2005. Hefur stundað veitingarekstur síðan 2005. Kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar 2005–2008. Sat í nemendaverndarráði skólans 2008–2012. Náms- og starfsráðgjafi í Menntaskólanum á Tröllaskaga og brautarstjóri starfsbrautar 2011–2013. Bæjarfulltrúi í Ólafsfirði 2006–2013. Formaður svæðisfélags VG í Ólafsfirði 2003–2009. Varaformaður VG í Norðausturkjördæmi 2003, formaður 2005–2008, gjaldkeri 2008–2013. Formaður sveitarstjórnarráðs VG 2010–2013. Í stjórn VG frá 2009. Alþingismaður Norðausturkjördæmis síðan 2013 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð). Varaþingmaður Norðausturkjördæmis nóvember 2004, mars–apríl 2006, maí–júní, júlí–ágúst 2009, apríl 2011, mars og nóvember 2012 og mars 2013 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð). Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2017–2021. Fjárlaganefnd 2013–2019, 2020–2021 og 2021–2023 (formaður 2021–2023), allsherjar- og menntamálanefnd 2014–2016 og 2019–2021, atvinnuveganefnd 2020 og 2021–, utanríkismálanefnd 2020, kjörbréfanefnd 2017, þingskapanefnd 2019–2021, velferðarnefnd 2023– (formaður 2023–). Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2017–2021 og 2021–, þingmannanefnd Íslands og ESB 2018–2021 og 2022–.
Vinstri græn Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Alþingi Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Sjá meira