„Þessar pönnukökur eru í miklu uppáhaldi á heimilinu! Innihalda engan sykur, æðislegt er að setja smá af lífrænu hlynsírópi eða Agave á þær ásamt ferskum og góðum berjum,“ skrifar Anna við færsluna.
Sykurlausar pönnukökur Önnu Eiríks
Hráefni:
2 egg
1/2 tsk vanilludropar
2 bollar spelt
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 1/2 bolli möndlumjólk (gott að prófa sig aðeins áfram hér)
Hráefnum blandað saman og steikt á pönnu.
Anna hefur starfað í rúm 25 ár sem þjálfari og hóptímakennari og er í dag deildarstjóri í Hreyfingu. Auk þess heldur hún úti heilsuvefnum annaeiriks.is þar sem hún býður upp á fjölbreytta og árangursríka fjarþjálfun, girnilegar uppskriftir sem innihalda engan viðbættan sykur, prógrömm og heilsumiðað blogg.