Óskar Örn jafnaði met Gunnleifs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2024 13:32 Óskar Örn Hauksson hefur spilað deildarleikina fyrir fimm félög eða Njarðvík, Grindavík, KR, Stjörnuna og nú síðast Víking. Vísir/Hulda Margrét Óskar Örn Hauksson spilaði með Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi en þetta var fyrsti deildarleikur hans fyrir Fossvogsliðið.
Óskar bætti um leið við leikjamet sitt í efstu deild en þetta var hans 374. leikur í efstu deild á Íslandi. Óskar eignaðist hins vegar annað met með því að spila leikinn í gær. Þetta var hans 439. deildarleikur á Íslandi og hann jafnaði með því met markvarðarins Gunnleifs Gunnleifssonar. Víðir Sigurðsson heldur utan um listann í bók sinni Íslensk knattspyrna. Gunnleifur var búinn að eiga metið einn síðan hann tók það af Gunnari Inga Valgeirssyni í júní 2019. Mark Duffield átti metið mjög lengi en hann spilaði 400 deildarleiki á Íslandi. Gunnar Ingi bætti metið upp í 424 leiki og Gunnleifur er með 439 leiki. Hjörtur Júlíus Hjartarson er einnig í fjögur hundruð leikja klúbbnum með 408 leiki. Óskar spilaði sextán leiki með Grindavík í Lengjudeildinni í fyrra en meiðsli komu í veg fyrir að hann spilaði alla leikina og bætti met Gunnleifs. Óskar réði sig sem styrktarþjálfari hjá Víkingi fyrir þetta tímabil en skipti síðan yfir í Víking og spilaði með liðinu á undirbúningstímabilinu. Óskar Örn er með 374 leiki í efstu deild (88 mörk), 31 leik í B-deildinni (14 mörk), 17 leiki í C-deild (2 mörk) og 17 leiki (7 mörk) í D-deild. Hann hefur því skorað 111 mörk í þessum 439 leikjum.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Tölfræði Bestu deilda Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Fleiri fréttir Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik Sjá meira