Englandsmeistarar Manchester City máttu ekki við því að misstíga í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið sótti Brighton heim og gerðu það svo sannarlega ekki.
Leikurinn var í raun algjör einstefna frá upphafi til enda en Kevin De Bruyne kom City á bragðið á 17. mínútu. Þá var komið að Phil Foden sem skoraði tvö mörk áður en flautað var til hálfleiks.
Julián Álvarez gerði svo út um leikinn á 62. mínútu eftir undirbúning frá Kyle Walker. Walker lagði einnig upp fyrsta mark leiksins og er þetta í fyrsta sinn sem Walker leggur upp tvö mörk í sama leiknum í ensku úrvalsdeildinni.
City-liðar færast með sigrinum upp í 2. sæti, stigi á eftir Arsenal og tveimur stigum á undan Liverpool en liðið á leik til góða á bæði liðin sem eiga fjóra leiki eftir hvort.