Murray með ótrúlega flautukörfu fyrir aftan miðju er Denver jafnaði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. maí 2024 08:31 Jamal Murray og félagar í Denver Nuggets hafa heldur betur svarað fyrir sig eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum gegn Minnesota Timberwolves. getty/David Berding Jamal Murray skoraði magnaða flautukörfu fyrir aftan miðju þegar Denver Nuggets sigraði Minnesota Timberwolves, 115-107, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. Staðan í einvíginu er 2-2.
Denver átti ótrúlegan endasprett í fyrri hálfleik en liðið skoraði átta stig á síðustu tuttugu sekúndum hans. Murray setti punktinn yfir i-ið þegar hann skoraði með skoti fyrir aftan miðju í þann mund sem leiktíminn rann út. WHAT A SEQUENCE. WHAT A SHOT. THAT'S JUST JAMAL MURRAY. pic.twitter.com/9urX9myNt8— Denver Nuggets (@nuggets) May 13, 2024 Nikola Jokic skoraði 35 stig, tók sjö fráköst og gaf sjö stoðsendingar fyrir Denver. Aaron Gordon skoraði 27 stig, tók sjö fráköst, gaf sex stoðsendingar og hitti úr ellefu af tólf skotum sínum. Aaron Gordon.Difference maker in Game 4.🔥 27 PTS🔥 11-12 FGM🔥 2-2 3PM🔥 7 REB🔥 6 AST🔥 2 BLKNuggets tie the series... Game 5 is Tuesday at 10:30pm/et on TNT! pic.twitter.com/XrNcxJ8ku4— NBA (@NBA) May 13, 2024 Murray var svo með nítján stig og átta stoðsendingar auk flautukörfunnar ótrúlegu. „Leikur tvö vakti okkur klárlega,“ sagði Murray eftir leikinn og vísaði til annars leiks liðanna í Minnesota sem Denver tapaði, 106-80. Síðan þá hafa meistararnir unnið tvo leiki í röð og jafnað einvígið. Anthony Edwards átti enn einn stórleikinn fyrir Minnesota og skoraði 44 stig. Enginn annar leikmaður Úlfanna skoraði meira en fimmtán stig.
NBA Mest lesið Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Býður sig óvænt fram til forseta fyrst kvenna Sport Sungu UEFA Mafia og Breiðablik fékk 1,4 milljóna króna sekt Fótbolti Dortmund biðst afsökunar á að hafa gert grín að stamandi áhrifavaldi Fótbolti Man. Utd fær tvo til baka: Amorim grínaðist með fundinn með Ratcliffe Enski boltinn Littler laug því að hann væri hættur Sport Sveindís áberandi í nótt en sofnar í bíó Fótbolti „Hugsa að hann eigi alveg inni einhverja sentímetra, jafnvel tíu“ Sport Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Fótbolti Segir að United hafi keypt rangan markvörð: „Aldrei heyrt um hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Sjá meira