Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar 2. júní 2024 14:00 Svarið við spurningunni hér fyrir ofan er já. Reiði eða almennt neikvæð orka. Nú kemur örugglega kurr frá einhverjum sem sitja í sinni fáfræði. En það er allt í lagi. Þeir átta sig líklega ekki á því að við, menn og dýr og allt í kringum okkur er uppbyggt úr orku. Góðar upplýsingar um þetta hægt að finna á netinu. Frægasta dæmið sem ég man eftir er þegar Geir H. Harde bað Guð að blessa Ísland og svo allar hörmungarnar sem á eftir komu. Hann, blessaður karlinn fékk svo krabbamein í kjölfarið. Ég held að við vitum öll, eða allavega mörg okkar að illt umtal, hatur, reiði og almenn neikvæðni er heilsuspillandi. Dæmin sem sanna það eru orðin mörg. Oft er það krabbamein sem eru afleiðing erfiðleika og neikvæðni. Ég tek það fram að ég er enginn sérfræðingur, en ég hef gaman af að lesa mér til um ýmislegt áhugavert með hjálp Googla vinar míns. Ekki er allt sem frá honum kemur heilagur sannleikur en þá er það bara að vega og meta hvað er rétt og hvað ekki. Eitt af því sem ég nefni gjarnan í þessu samhengi er tilraun sem skólakrakkar í Dubai gerðu í einni IKEA versluninni þarna. Krakkarnir fengu tvær alveg eins plöntur úr búðinni og voru plönturnar settar í eins kassa. Gekk tilraunin út á að sjá hvort einhver munur yrði á plöntunum ef talað væri fallega við aðra en illa við hina. Tilraun krakkanna snerist um að kanna hvort það hafi sýnileg áhrif, ef einstaklingur er lagður í einelti (bullying). Að 30 dögum liðnum mátti sjá stóran mun á plöntunum. Önnur plantan stóð keik og falleg, hin var með lafandi gul blöð. Ég þarf ekki að segja ykkur hvor plantan fékk hvaða meðferð. Hér er linkur á tilraunina ef þið viljið sjá þetta með eigin augum: https://www.youtube.com/watch?v=Yx6UgfQreYY Svo hnaut ég um alveg frábæra rannsókn sem Sigríður Halldórsdóttir prófessor við Háskólann á Akureyri stóð að. Rannsóknin, sem var samnorræn, átti fyrst að vera þverfagleg rannsókn á eftirstöðvum þjáningu kvenna vegna brjóstakrabbameins. Konur í íslenska úrtakinu sögðu að brjóstakrabbameinið var ekki neitt, það var ekki þjáning míns lífs. Það var alvarlegt ofbeldi í nánu sambandi sem þær höfðu upplifað. Þarna lýsir Sigríður mjög vel ömurlegum veruleika þeirra kvenna sem lent hafa í heimilisofbeldi sem á íslensku er nefnt nándarhryðjuverk. Ég hvet ykkur til að hlusta á eða lesa þennan góða pistilinn hér á eftir. Umfjöllunin hefst 14:44 https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-02-23-islenskar-konur-halda-ofbeldi-af-hendi-maka-leyndu-ut-aevina?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR03dXyxFXWzdpmofUHwxQ9ryUNZbT7xBGSjaL-85g6pvytP6qKq9qckziM_aem_AaZR8Ianiako0N9jTZ6VbpeTYXvEEV6u6uNPFsF69IlKpNMmzCUO8YLFYIo6Broe829wn2xkEdGiCgYFGA7wFSIm Rannsókn Sigríðar heitir: In the jaws of death sem er einmitt lýsandi fyrir þetta alvarlega og oft lífshættulega falda ofbeldi sem allt of margar konur verða fyrir. Eins og fram kemur í greininni eru margar þessara kvenna orðnar veikar eftir sambúðina. Annað alvarlegt sem ég vil benda á, er líðan barna sem búa við þessar aðstæður. Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið rannsakað en ég veit um 2 börn úr fjölskyldu þar sem svona falið ofbeldi og mikil reiði viðgekkst. Þar urðu bæði börnin alvarlega veik og annað þeirra fékk alvarlegt krabbamein tvisvar sinnum fyrir 7 ára aldur. Krabbameinið tók sig upp aftur og aftur hjá barninu þangað til móðirinni tókst að flýja heimilið. Þetta finnst mér vera umhugsunarefni og ég er ekki viss um að t.d. heilbrigðisstarfsfólk átti sig á þessari tengingu. Ég vil vekja athygli á þessu erfiða og líklega allt of algenga, vel falda vandamáli. Til ykkar sem eru í þessari erfiðu stöðu, þó það sé erfitt að flýja/koma sér í burtu…… Forðið ykkur, mögulega liggur lífið við! Það eru margar “ofbeldis síður” á facebook þar sem hægt er að fá stuðning og góð ráð. Kvennaathvarfið, Stígamót og Bjarkarhlíð eru mjög hjálpleg í svona aðstæðum. Hjálparsími Rauðakrossins er líka með nafnlaust netspjall fyrir allan aldur. Svo er líka alltaf hægt að hringja í 112, neyðarlínuna. Bæði fyrir konur og karla. Kvennaathvarfið, er bæði í Rvk og Akureyri, Sími: 561 1205 https://kvennaathvarf.is/sp-sv/ Stígamót, berjast gegn kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Sími: 562-6868. https://stigamot.is/um-stigamot/ Bjarkarhlíð, er víða um land og er ráðgjöf fyrir þolendur ofbeldis. Sími: 553- 3000 https://bjarkarhlid.is/ 553 3000 Höfundur er fyrrverandi dagmamma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar