Svisslendingar byrja Evrópumótið á öruggum sigri 3-1 á Ungverjalandi. Fyrir leikinn höfðu Ungverjar ekki tapað keppnisleik síðan haustið 2022 en liðið tapaði ekki leik í undankeppninni. Þeir voru afar ólíkir sjálfum sér framan af leik og komust varla af eigin vallarhelmingi.

Kwadwo Duah kom Sviss yfir strax á 12. mínútu en þetta var hans fyrsta landsliðsmark og aðeins hans annar landsleikur. Rétt fyrir hálfleik kom Michel Aebischer Svisslendingum svo í 2-0 með góðu skoti fyrir utan teig en þetta var jafnframt hans fyrsta landsliðsmark.

Ungverjar voru öllu hressari í seinni hálfleik en þeir hafa eflaust fengið orð í eyra frá þjálfara sínum, Murat Yakin, í klefanum í hálfleik.
Mark frá þeim lá í loftinu og eftir nokkur góð færi hjá Barnabás Varga minnkaði hann muninn á 66. mínútu þar sem hann var vel staðsettur eftir fyrirgjöf og skallaði boltann hárnákvæmt í markið.

Ungverjar settu mikinn kraft í að reyna að jafna leikinn sem þýddi að varnarleikur liðsins varð brothættur sem Svisslendingar færðu sér í nyt með skyndisóknum. Ein slík bar ávöxt á 94. mínútu þegar varamaðurinn Bendegúz Bolla kom boltanum í netið.
Niðurstaðan nokkuð sanngjarn 3-1 sigur Sviss en Ungverjar náðu ekki að sýna sitt rétta andlit nema í stutta stund í dag.