Hlín með tvö mörk á fyrstu tíu mínútunum í sigri Kristianstad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2024 15:54 Hlín Eiríksdóttir er þegar komið með sex deildarmörk á tímabilinu og það eru bara ellefu leikir búnir. Vísir/Hulda Margrét Íslendingaliðið Kristianstad er á góðu skriði í sænska kvennaboltanum og vann flottan heimasigur í dag.
Kristianstad vann þá 3-1 sigur á Linköping en þetta var annar sigur liðsins í röð og sá sjöundi í síðustu átta leikjum. Það var algjör draumabyrjun sem skipti mestu máli í þessum leik. Íslenska landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk á fyrstu átta mínútum leiksins en það fyrra kom á fimmtu mínútu eftir stoðsendingu frá löndu hennar Kötlu Tryggvadóttur. Þremur mínútum síðar skoraði Hlín eftir sendingu frá Tildu Persson. Þriðja markið skoraði síðan Tabby Tindell strax á annarri mínútu í seinni hálfleiknum og úrslitin voru nánast ráðin. Hlín hefur verið að spila mjög vel í sumar og er komin með sex mörk í fyrstu ellefu deildarleikjunum á tímabilinu. Hún hefur líka gefið þrjár stoðsendingar og hefur því komið með beinum hætti að níu mörkum liðsins. Katla hefur einnig verið að gera góða hluti og hefur alls komið að sex mörkum á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. Þetta var áttundi sigur Kristianstad í ellefu leikjum í sumar. Liðið er tveimur stigum frá þriðja sætinu en á leik inni á Hammarby.
Sænski boltinn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Sjá meira