Ísland er einstakt: Ísland dettur ekki úr tísku nema við leyfum því að detta úr tísku Anna Kristín Kristjánsdóttir, Selma Rut Þorsteinsdóttir, Hrafn Gunnarsson, Högni Högnason og Hafsteinn Sv. Hafsteinsson skrifa 25. júní 2024 09:30 Dvínandi áhugi ferðamanna á Íslandi sem áfangastað er eðlilega mikið áhyggjuefni. Umræðan þyngist eftir því sem örvæntingin í atvinnugreininni eykst. Á sama tíma hefur rödd Íslands út á við, markaðsrödd vörumerkisins Íslands, ekki hljómað eins og skyldi. Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta Íslandsstofu, benti réttilega á að Ísland væri ekki að verja nægu fjármagni í þennan sýnileika og sér í lagi að fylgja eftir þeirri athygli og jákvæðu ásýnd sem Ísland er búið að byggja upp á mörgum sviðum. Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA) hefur haft áhyggjur af þessari þróun lengi. Ekki bara í tengslum við Ísland og íslenska ferðaþjónustu, heldur almennt um lífvænleika og samkeppnishæfni og seiglu vörumerkja í samdrætti. Auglýsingageirinn kannast nefnilega alltof vel við að í svona árferði er markaðskostnaður oftast það fyrsta sem auglýsendur skera niður. Þá er horft framhjá þeim áhrifum sem slíkur niðurskurður getur haft á vörumerkin til lengri tíma. SÍA vill leggja áherslu á mikilvægi þess að allir sem vinna á einn eða annan hátt að markaðsmálum hafi það hugfast að með sköpunarkrafti getur markaðsstarf og þær auglýsingaherferðir sem verða til á erfiðum tímum náð til nýrra og jafnvel breiðari markhópa og ýtt undir dýpri og varanlegri tengingar við neytendur. Með því að sýna þrautseigju í markaðsmálum á tímum samdráttar er líklegra að vörumerki og fyrirtæki komi fyrr til baka og af enn meiri krafti en áður. Það er mikilvægt að fjárfesta í nýsköpun, þróun og sýnileika, ekki síst þegar verið er að byggja upp eða viðhalda góðu orðspori. Mótlætið sem felst í samdrætti á að vera fóður fyrir góðar hugmyndir, nýstárlegar lausnir og markaðssetningu sem viðheldur og byggir upp vörumerki og skapar frjóan jarðveg fyrir enn betri árangur þegar betur árar. Mikilvægt er að viðhalda stöðugleika í ásýnd en það krefst seiglu, sköpunargáfu, virkni og sýnileika. Ef skortur er á stöðugleika í markaðsstarfi þá þarf að sýna styrk og spyrna okkur upp á ný og virkja leiðir til að efla ásýndina. Vörumerki – ímynd Íslands í þessu tilfelli – eru oft fyrstu fórnarlömb kreppu og þetta er einmitt grundvallarvandamál allra sem starfa við markaðssetningu og – almannatengsl. Vörumerkin sem við vinnum fyrir eru jú kjarninn í okkar afkomu. En heilbrigð vörumerki eru einnig ákaflega mikilvæg fyrir efnahaginn í heild. Óáþreifanleg verðmæti þeirra (e. brand equity) eru sem fjárhagslegt súrefni. Vörumerki sem draga úr fjárfestingum í markaðsmálum missa markaðshlutdeild. Það er staðreynd og marg rannsakað;samkeppnisforskot tapast á meðan samkeppnin viðheldur fjárfestingu sinni eða eykur hana. Ísland er einstakt; Ísland dettur ekki úr tísku nema við leyfum því að detta úr tísku. Við þurfum að rækta og viðhalda því góða og tryggja að jákvæð ásýnd og gæði afþreyingar sé öllum aðgengileg, þetta er ásetningur sem þarf að fylgja eftir og vinna að með skipulegum hætti. Við þurfum að minna á okkur markvisst og nota skapandi leiðir til að greina okkur skýrt frá öðrum áfangastöðum. Við þurfum að koma skýrum skilaboðum á framfæri og sýna hversu verðug við erum til að heimsækja svo heimurinn viti að við erum hér enn, jafn góð ef ekki betri en áður. Réttilega hefur verið bent á að einkafyrirtæki geta ekki ein og sér borið uppi alþjóðamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.Reyndar geta stórfyrirtæki á markaði ekki heldur ein borið ábyrgð á henni. Til að vel takist til þurfa öll að leggjast á eitt. Við erum lítið hagkerfi og því mikilvægara en ella að nýta allt fjármagn vel til að hámarka árangur. Við viljum líka verja fjármuni og fjárfestingakosti okkar og halda allri grunnvinnu í heimalandinu. Til lengri tíma litið þá eflir það samkeppnishæfni landsins. Við þekkjum okkur best og höfum byggt upp hugvit, þekkingu og nýsköpunarumhverfi sem á að gera okkur kleift að koma okkur á framfæri með íslensku hugviti, sköpunarkrafti og innsæi. Beint frá býli. Hagur allra að auglýsa Ísland Þess vegna fögnum við hjá SíA því að Lilja Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra, sé búin að boða átak í neytendamarkaðssetningu fyrir ferðamenn. Það er mikilvægt að hlustað sé á gagnrýnisraddirnar sem hafa ómað um ósamræmi í erlendri umfjöllun um jarðhræringar á Íslandi og að ferðaþjónustan hafi liðið fyrir „hamfaraspennu“ í fjölmiðlaumræðu sem gefur mikla smelli á sama tíma og það verður fráhrindandi að heimsækja landið. Líkt og Lilja Alfreðsdóttir og fleiri hafa bent á er tíminn naumur og því er enn mikilvægara að vinna hratt og vel og sóa sem minnstu fjármagni í aðdragandanum. Það hefur verið leið opinbera geirans eins og t.d. Íslandsstofu að fara í útboð, sem getur tekið marga mánuði áður en samstarfsaðilar eru valdir og hægt er að hefjast handa af alvöru í markaðssókn. Þetta ferli á að tryggja gagnsæi og sanngjarnt valferli en það hefur hins vegar ekki fyllilega tryggt innlenda verðmætasköpun þar sem fjármunir sem varið er í markaðssetninguna byggi undir íslenskt hugvit, langtímaþekkingu og varðveislu starfa í greinum markaðsmála á íslandi. Mörg verkefni hafa farið úr landi og því hefur þekking glatast. Við hjá SÍA viljum því skora á ráðherra menningar og viðskipta og allra þeirra sem munu koma að því að ráðstafa þessu fjármagni til neytendamarkaðssetningar fyrir ferðamenn að draga fagfólk í markaðsmálum að borðinu. Framundan er eitt mikilvægasta verkefnið í að tryggja ásýnd Íslands á erlendri grundu, að viðhalda og byggja upp orðspor lands og þjóðar í jákvæðu samhengi og rísa upp úr þeirri lægð sem ferðaþjónustan er komin í. Við hjá SÍA viljum sjá samhent átak, sem er hugsað til lengri tíma en ekki bara lægðarinnar sem við stöndum frammi fyrir. Við viljum leggja hönd á plóg og bjóða fram íslenskt hugvit og hugmyndaauðgi, íslenska fagmennsku og þekkingu sem hér býr. Ísland er ennþá best í heimi. Ísland er ennþá töff.Hér ríkir fjölbreytileiki, aðlögunarhæfni og seigla sem vert er að segja frá. Ísland er ekki bara hátt verðlag, heldur stórfengleg náttúra, sterkir innviðir, þjóð sem er til fyrirmyndar á mörgum sviðum, hráefni í stórkostlegar máltíðir og svo mætti áfram telja. Við högnumst öll á sterkri ímynd Íslands; ferðaþjónustan, hugverkageirinn, skapandi greinar, sjávarútvegur og atvinnulífið í heild sinni. Hver á að halda uppi heiðri okkar út á við ef við gerum það ekki sjálf!? Góð ásýnd Íslands styður líka við þjóðarsálina og gerir okkur sjálf stolt. Ferðamenn koma ekki síst til okkar vegna sérstöðu okkar og Ísland getur áfram boðið upp á framúrskarandi upplifanir. Saman getum við verið áberandi, hávær, skemmtileg, skapandi, áhugaverð og framúrskarandi. Verum einstök og eftirsóknarverð –saman. Höfundar eru í stjórn SíA, Sambands íslenskra auglýsingastofa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun