Álftanes fær til sín leikjahæsta Stjörnumanninn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2024 10:10 Kjartan Atli Kjartanssyni, þjálfari Álftanesliðsins, býður Tómas Þórð Hilmarsson velkominn í sitt lið. Álftanes Tómas Þórður Hilmarsson hefur fært sig á milli liða í Garðabænum en hann hefur samið við Álftanes og spilar með liðinu i úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Tómas er leikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild.
Álftanes verður fyrsta liðið sem Tómas gengur í hér á landi fyrir utan uppeldisfélag sitt Stjörnuna. Hann spilaði einu sinni á lánssamningi hjá FSu en Tómas hefur auk þess leikið á Spáni og í bandaríska háskólaboltanum. Hann á að baki ellefu leiki fyrir íslenska A-landsliðið og fjölmarga leiki með yngri landsliðum Íslands. Tómas hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari. Hann hefur alls spilað 232 deildarleiki fyrir Stjörnuna eða 46 fleiri en næsthæsti maður sem er Justin Shouse með 86 leiki. „Tilfinningin er góð að vera kominn í Álftanes og ég er mjög peppaður. Liðið lítur orðið mjög vel út og hlakka ég til komandi tímabils,“ segir Tómas Þórður Hilmarsson um vistaskiptin í fréttatilkynningu frá Álftanesi. Hann segir að aðdragandinn hafi ekki verið langur og ferlið gengið smurt fyrir sig. Tómas þekkir Kjartan Atla Kjartansson, þjálfara Álftnesinga, nokkuð vel en Tómas lék fyrir Kjartan um árabil í yngri flokkum Stjörnunnar. „Þjálfarateymið lítur mjög vel út með Hjalta kominn inn í þetta og þekkjandi Kjarra frá yngri árum þá veit ég hvað ég mun fá frá honum, auk þess sem leikmannahópurinn er mjög góð blanda af leikmönnum með reynslu og gæði.“ Þekkir Tómas vel „Ég þekki Tomma vel. Ég þjálfaði hann lengi í yngri flokkunum, lék með honum í meistaraflokki og þjálfaði hann síðan sömuleiðis á þeim vettvangi. Hann er algjör nagli og er leikmaður sem er gott að hafa við hliðina á sér í baráttunni,“ segir Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness. Hann bætir við að Tómas sé reynslumikill leikmaður sem kemur með ýmsa kosti inn í leikmannahóp Álftnesinga. „Tommi þekkir deildina út og inn, frákastar virkilega vel, teygir á gólfinu með góðum langskotum og kemur með ýmislegt annað að borðinu. Ég hlakka til að sjá hann í Álftanesbúningnum.“
Subway-deild karla UMF Álftanes Stjarnan Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira