Heilmikil umræða hefur verið í samfélaginu að undanförnu um kolsvarta stöðu drengja í skólakerfinu. Árangur drengja í námi er ekki góður, en nýjasta PISA könnunin leiddi m.a. í ljós að aðeins um annar hver drengur geti lesið sér til gagns að grunnskólagöngu lokinni.
Athygli hefur vakið að árangur að rannsóknar- og þróunarverkefninu Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum hefur verið mjög góður, og að viðsnúningur til betra skólakerfis, bæði fyrir drengi og stúlkur hafi gerst hratt.
„Þetta er kerfisvandi, ekki vandi drengja“
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir að árangurinn megi rekja til þess að árið 2021 hafi verið tekin sameiginleg ákvörðun í Vestmannaeyjum um að stíga inn í og gera breytingar. Þá var tekin ákvörðun um að vera þátttakandi í þessu verkefni, sem Hermundur Sigmundsson prófessor á frumkvæði að. Verkefnið er í samstarfi við Háskóla Íslands, Menntamálaráðuneytið og Samtök atvinnulífsins.
Hún segir að drengir séu ekki vandamál, vandinn sé kerfislægur og ekki vandi drengja. „Það er ekki munur á stúlkum og drengjum hjá okkur, þetta snýst um umhverfið sem þú ert að skapa,“ segir Íris.
„Við höfum gert ýmislegt hérna til að brjótast út úr þessum aðstæðum sem hafa verið í skólakerfinu frekar lengi.“
Hreyfing á hverjum degi og ástríðutímar í lok dags
Íris segir að í verkefninu Kveikjum neistann, felist í rauninni ný nálgun á það hvernig skóladagurinn er byggður upp. Til að mynda hefjist hver einasti dagur á hreyfingu.
„Það eru auðvitað tveir leikfimistímar og einn sundtími í viku. En svo er öðruvísi hreyfing hina dagana. Það er hreyfing á hverjum degi fyrir hádegi. Þetta skiptir máli,“ segir Íris.
Svo séu ástríðutímar í lok hvers dags, en þar fái hver nemandi að velja það sem þeim finnst gaman að gera. „Þú færð að velja í upphafi dags, ef þér finnst rosalega gaman í matreiðslu, þá bara geturðu valið það alltaf eftir hádegi,“ segir Íris. Til að ljúka deginum hafi þau alltaf eitthvað til að hlakka til.

Einnig séu svokallaðir þjálfunartímar. „Allir eru með áskoranir við hæfi, og það fá allir eftirfylgni. Hver og einn keppir svolítið við sjálfan sig. Svo eru stöðluð mælitæki, og þú ert klárlega alltaf að bæta þig, af því að þú ert alltaf að miða við árangurinn sem þú náðir sjálfur síðast,“ segir Íris.
Þetta sé ný nálgun á það hvernig skólanum er stillt upp.
Árangurinn hefur ekki leynt sér
Árangurinn af þessari nýju nálgun virðist vera mjög góður. Í vetur hafa þrír árgangar fylgt verkefninu, og niðurstöðurnar hafa verið mjög jákvæðar, sérstaklega ef horft er til rannsóknarhópsins sem er nú í þriðja bekk. 91 prósent nemenda í þriðja bekk teljast nú læsir samkvæmt niðurstöðum mælitækisins LÆS III.
Jákvæðra áhrifa gætir þó einnig á öðrum sviðum.
„Það sem að við uppgötvuðum og kom í ljós, er að börnin virðast vera glaðari og ánægðari, og foreldrarnir eru ánægðari með skólann. Við höfum gert tengslakannanir í öðrum bekk í skólanum í um tuttugu ár, og krakkarnir upplifa það nú að þau eigi miklu fleiri vini,“ segir Íris.
Fyrir breytingarnar hafi flestir svarað því að þau ættu sjö til átta vini, en eftir breytingarnar hafi meðaltalið færst yfir í átján til tuttugu vini.
„Við erum ótrúlega ánægð með þetta. En númer eitt, tvö og þrjú, snýst verkefnið um það að allir geti nýtt sína styrkleika, og að börnin okkar fái tækifæri til að blómstra, öll, alveg sama úr hvaða aðstæðum þau koma,“ segir Íris.
Alltaf snúist svona breytingar um að skólasamfélagið sjálft keyri svona breytingar í gegn. „Ég er alveg gríðarlega ánægð með það hvernig grunnskólinn og starfsfólkið þar hefur tekist við þær áskoranir sem fylgja svona breytingum, og náð svona góðum árangri,“ segir Íris.
Sjá frekari upplýsingar um verkefnið á heimasíðu verkefnisins.