Svifhrifavaldar Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar 15. júlí 2024 12:02 Í myrkri næturinnar svífa þeir, óséðir og þögulir, eins og óorðinn leyndardómur. Svifhrifavaldar sem líkjast örsmáum, ósýnilegum vetrarbrautum sem leika um andrúmsloftið. Eins og ósýnilegir dansarar í myrkri, sem leggja af stað í langar ferðir um heiminn, svífa yfir borgir og sveitir og fara inn í hjörtu menningar og náttúru. Með andardrættinum setjast þeir eins og myrkviður sem teygir sig inn á heilögustu svæði mannslíkamans. Í myrkum háloftum musterisins hefur hann ferðalagið og ferðast með æðum, inn í blóðrásina og leggst á frumurnar okkar. Svifhrif sem hefjast með agnarsmáum kröftum skilja eftir sig ör, sem ekkert auga getur séð. Svifhrifavaldar dansa fram á nótt, setjast svo niður á laufblöðin, í jörðina, vötnin og árnar, þar sem skilin eru kemísk og jafnvægistruflandi spor, á vistkerfinu, sem skaðast og á lífinu, sem breytist. Svifhrif smágerðra, óséðra agnarsmárra agna sem dreifa sér með vindi, umbreyta jarðvegi í eitur og vatni í drepsótt. Það er eitthvað heillandi og ógnvekjandi við ósýnileg öfl, sem minnir okkur á að heimurinn er fullur af undrum og vá, sem fara á stjá en enginn fær að sjá en berst með hverjum andardrætti, svifi og dropa, sem vellur og fellur. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Sjá meira
Í myrkri næturinnar svífa þeir, óséðir og þögulir, eins og óorðinn leyndardómur. Svifhrifavaldar sem líkjast örsmáum, ósýnilegum vetrarbrautum sem leika um andrúmsloftið. Eins og ósýnilegir dansarar í myrkri, sem leggja af stað í langar ferðir um heiminn, svífa yfir borgir og sveitir og fara inn í hjörtu menningar og náttúru. Með andardrættinum setjast þeir eins og myrkviður sem teygir sig inn á heilögustu svæði mannslíkamans. Í myrkum háloftum musterisins hefur hann ferðalagið og ferðast með æðum, inn í blóðrásina og leggst á frumurnar okkar. Svifhrif sem hefjast með agnarsmáum kröftum skilja eftir sig ör, sem ekkert auga getur séð. Svifhrifavaldar dansa fram á nótt, setjast svo niður á laufblöðin, í jörðina, vötnin og árnar, þar sem skilin eru kemísk og jafnvægistruflandi spor, á vistkerfinu, sem skaðast og á lífinu, sem breytist. Svifhrif smágerðra, óséðra agnarsmárra agna sem dreifa sér með vindi, umbreyta jarðvegi í eitur og vatni í drepsótt. Það er eitthvað heillandi og ógnvekjandi við ósýnileg öfl, sem minnir okkur á að heimurinn er fullur af undrum og vá, sem fara á stjá en enginn fær að sjá en berst með hverjum andardrætti, svifi og dropa, sem vellur og fellur. Höfundur er lögfræðingur.
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar