Stuðningur við fólk með krabbamein á Íslandi og núvitund Eva Gunnarsdóttir skrifar 18. júlí 2024 17:00 Eftir að ég veiktist af krabbameini hef ég kynnst helstu stofnunum á Íslandi og forsvarsmönnum þeirra sem vinna að rannsóknum á sjúkdómnum og veita endurhæfingu í kjölfar krabbameinsmeðferða en krabbamein snertir flesta einhverntíma á lífsleiðinni með einum eða öðrum hætti. Krabbameinsfélagið er almannaheillafélag sem hefur þann tilgang að styðja og efla baráttuna gegn krabbameinum. Tilgangur krabbameinsfélagsins er að draga úr nýgengi krabbameina og dánartíðna af völdum þeirra og bæta lífsgæði þeirra sem greinast og aðstandenda þeirra. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins er Halla Þorvaldsdóttir sálfræðingur sem starfaði um árabil í Sálfræðingafélagi Íslands. Innan Krabbameinsfélagsins fara fram krabbameinsrannsóknir í samstarfi við innlenda og erlenda vísindamenn. Fræðsla og forvarnir eru mikilvægur þáttur starfseminnar sem og ráðgjöf og stuðningur. Markmiðið er að hjálpa fólki að ná jafnvægi aftur í lífinu eftir þær breyttu aðstæður sem greining á krabbmeini veldur. Í boði eru ókeypis viðtöl við einstaklinga og fjölskyldur auk ýmissa námskeiða. Í kjallara Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð er Kraftur, samtök ungs fólks sem hefur fengið sjúkdóminn. Ungt fólk með krabbamein teljast þeir sem hafa fengið sjúkdóminn 40 ára og yngri. Þegar ég veiktist af ristilkrabbameini var ég fertug og því rétt innan þeirra marka að teljast ung kona með krabbamein. Þessi hópur er oft að fást við sérstakar áskoranir í tengslum við sjúkdóminn sökum ungs aldurs sem Kraftur styður við. Framkvæmdastjóri Krafts er Hulda Hjámarsdóttir, menntuð í sálfræði og sálgæslu. Ljósið er endurhæfingar og félagsleg miðstöð fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur þeirra. Í heimilislegum húsakynnum þess er meðal annars boðið upp á líkamsrækt, jóga, nudd, iðjuþjálfun og námskeið í núvitund. Þar er meira að segja lítið trúnaðarherbergi en eins og gefur að skilja er ýmislegt sem krabbameinssjúkum liggur á hjarta og þarna gefst kostur á að ræða dýpstu hjartansmál í öruggu umhverfi með fólki sem hefur innsýn inn í sjúkdóminn. Forstöðukona Ljóssins er Erna Ómarsdóttir iðjuþjálfi. Eftir að ég lauk krabbameinsmeðferð 2017 hef ég dvalið á hverju sumri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þar kemur fólk alls staðar að af landinu með heilsutengd vandmál. Þar fer fram margskonar endurhæfing og aðstaðan í Hveragerði er til fyrirmyndar. Sundlaugaraðstaðan er eins og spa á heimsmælikvarða og arkítektúrinn gæti sómt sér vel á hvaða lúxushóteli sem er í heimunum. Í Hveragerði gefst fólki sem reynt heilsumissi tækifæri til að kynnast öðru fólki með sambærilega reynslu. Það getur verið einangrandi þegar fótunum er skyndilega kippt undan fólki og það er ekki lengur fært að gera hluti sem áður þóttu sjálfsagðir. Þá er mikill styrkur að hitta annað fólk sem hefur sambærilega reynslu. Á Heilsustofnun í Hveragerði hef ég kynnst fólki frá öllum lögum samfélagsins og myndað dýrmæt vináttusambönd sem hafa haldist að dvöl lokinni. Heilsustofnun er fyrsta heilbrigðisstofnun landsins sem innleiddi núvitund inn í meðferðarstarf en Bandaríkjamaðurinn Jon Kabat-Zinn professor emeritus í læknisfræði við University of Massachusetts í Boston var brautryðjandinn sem færði núvitund inn í hefðbundnar heilbrigðisstofnanir á Vesturlöndum og stofnaði Streitulosunar klínik (Stress Reduction Clinic) við læknadeild háskólans. Núvitundartímar eru fastir liðir í stundaskrá Heilsustofnunar og boðið er upp á opna tíma í núvitund alla morgna sem eru aðgengilegir dvalargestum. Einnig er boðið upp á námskeið í Compassion Focussed Therapy (CFT) eftir skoska sálfræðinginn Paul Gilbert, Mindful Self Compassion (MSC) eftir sálfræðiprófessorinn Kristin Neff og Acceptance and Commitment Therapy (ACT) eftir ástralska sálfræðinginn Russ Harris. Vísindalegum rannsóknum á núvitund hefur fleygt fram á síðustu áratugum og mikilvægi núvitundar í meðferðarstarfi er að verða sífellt viðurkenndara. Í Bretlandi er til dæmis mælt með Hugrænni atferlismeðferð sem byggir á núvitund (Mindfulness based Cognitive Therapy) fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum þrjú þunglyndistímabil eða fleiri sem fyrsta meðferðarval af NICE (National Institute for Health and Care Excellence) en rannsóknir hafa leitt í ljós ótvíræðan árangur af þeirri meðferðarnálgun fyrir þennan hóp. Ofangreindar sálfræðilegar nálganir sem byggja á núvitund eru stærstu stólparnir sem eru notaðar á Vesturlöndum í dag. Núvitund og skyldar sálfræðilegar nálganir hafa orðið að viðurkenndum aðferðum í almennu heilbrigðiskerfi á Vesturlöndum og eru kenndar á spítölum og öðrum stofnunum sem koma að heilsu og endurhæfingu. Í bók minni sem er væntaleg fyrir jólin fjalla ég um allar þessar stefnur, skýri hvernig þær nýttust mér þegar ég var að ganga í gegnum meðferð og hvernig þær geta stutt við fólk með krabbamein en tíðnin er sífellt að hækka og nú er talið að allt að einn af hverjum tveimur fái sjúkdóminn einhverntíma á lífsleiðinni. Það er því gríðarleg þörf á öflugum meðferðarúrræðum sem hafa verið vísindalega rannsökuð og staðist samanburðartilraunir til styðja þennan fjölmenna hóp fólks. Það kemur ekki á óvart að Heilsustofnun í Hveragerði hafi tileinkað sér nýjustu aðferðir í núvitund og skyldum nálgunum fyrst stofnanna á Íslandi en Jónas Kristjánsson læknir sem stofnaði Heilsustofnun árið 1955 var frumkvöðull í heilsutengdum málefnum og meðferðum. Hann var þekktur fyrir að bjóða upp á nýstárleg meðferðarúrræði og heilsufæðið á stofnuninni þótti byltingarkennt á sínum tíma. Ingi Þór Jónsson markaðstjóri Heilstustofnunar tekur á móti erlendum gestum á sviði heilbrigðismála sem koma til að skoða aðstöðuna, kynna sér starfsemina og arfleifð Jónasar. Í starfi sínu styður hann einnig við félagslíf dvalargesta og hjálpar til við að skipuleggja kvöldvökur en hluti af starfsemi Heilsustofnunar er að virkja fálagslega þátttöku dvalargesta sem hafa margir einangrast félagslega í veikindum sínum. Það hefur verið heiður að fá að kynnast starfsemi þessara stofnanna og starfsfólki þeirra sem vinnur óeigingjarnt starf til að styðja fólk með krabbamein í gegnum meðferð og endurhæfingu. Höfundur er sálfræðingur og núvitundarkennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Heilbrigðismál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar