Myndaveisla frá Götubitahátíðinni þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin 23. júlí 2024 11:25 Laddi og Magni mættu í Bylgjubílinn og fluttu nýtt lag með Ladda og Hljómsveit mannanna. Agnes Ýr og Bragi Guðmuns sáu um Bylgjulestina á laugardag. Myndir/Hulda Margrét Síðasta laugardag mætti Bylgjulestin á Götubitahátíðina í Hljómskálagarðinum í Reykjavík en þar var saman komin flóra íslenskra matarvagna.
Það voru Bragi Guðmunds og Agnes Ýr sem sáu um Bylgjulestina og voru þau í beinni útsendingu milli klukkan 12 til 16 þar sem þau tóku púlsinn á þessum stærsta matarviðburði á Íslandi. Fjöldi matarvagna var á Götubitahátíðinni um helgina og var boðið upp á úrval gómsætra rétta. Ljósmyndarinn Hulda Margrét var á staðnum og tók fjölda skemmtilegra mynda af lífsglöðum hátíðargestum. „Robbi, sem sér um allt utanumhald hátíðarinnar kíkti í Bylgjubílinn og lofaði góðri skemmtun og framúrskarandi matarupplifun sem stóðst allt saman,“ segir Bragi. „Auk þess lék veðrið við gesti sem lögðu leið sína í garðinn.“ Í tengslum við hátíðina var svo keppni um besta götubitann og kíkti Adam í heimsókn í Bylgjubílinn en hann var einn dómaranna sem völdu að lokum sigurvegarann sem krýndur var á sunnudeginum. Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, sagði hlustendum frá spennandi Íslandsmóti í golfi sem haldið var á Hólmsvelli í Leiru um helgina auk þess sem hún ræddi gríðarlegan áhuga og uppgang íþróttarinnar hérlendis. Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, kíkti í heimsókn. Undir lokin kíktu Laddi og Magni í heimsókn með glænýtt lag Ladda og Hljómsveitar mannanna sem þeir tóku með stæl. Frábær dagur í Hljómskálagarðinum á laugardaginn. Um næstu helgi, laugardaginn 27. júlí, verður Bylgjulestin í Hjarta Hafnarfjarðar það verður síðasti viðkomustaður Bylgjulestarinnar þetta sumarið.
Bylgjan Bylgjulestin Matur Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira