Í textaspá Veðurstofunnar segir að lengst af verði þurrt norðaustanlands í dag en sums staðar lítilsháttar rigning annað kvöld. Hiti mælist 8 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Á morgun er spáð suðlægri átt 5-13 m/s og rigningu, en fyrir norðan verður úrkomuminna. Á fimmtudag verður breytileg átt 3-8 m/s. Rigning eða súld á suðaustanverðu landinu og á Vesfjörðum fyrri part dags. Annars bjart með köflum en stöku síðdegisskúrir. Hiti 7 til 17 stig, svalast fyrir austan.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Sunnan 5-13 m/s og rigning með köflum, en lengst af úrkomulítið norðaustantil. Lægir seinnipartinn. Hiti 10 til 17 stig.
Á fimmtudag:
Breytileg átt 3-8 og súld eða dálítil rigning með köflum, einkum suðaustantil. Allvíða skúrir inn til landsins síðdegis. Hiti 12 til 17 stig.
Á föstudag:
Norðvestan 3-10 og rigning austanlands. Lengst af úrkomulítið um landið vestanvert en stöku skúrir þar síðdegis. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast syðst.
Á laugardag:
Vaxandi suðlæg átt og fer að rigna, en úrkomuminna austantil. Hiti 9 til 15 stig.
Á sunnudag:
Suðlæg átt og stöku skúrir en rigning suðaustanlands og þurrt að kalla á Norðausturlandi. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Útlit fyrir vestlæga átt. Skýjað og víða úrkomulítið, en rigning austanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.