Lífið á Vísi ræðir við stúlkurnar sem keppast um titilinn Ungfrú Ísland í ár og fær að kynnast þeim aðeins betur. Ungfrú Ísland verður í beinni útsendingu 14. ágúst á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Fullt nafn?
Alsatisha Sif Amon.
Aldur?
25 ára.
Starf?
Ég vinn við sérkennslu á leikskóla.
Hvað var það sem vakti áhuga þinn á keppninni?
Frænka mín heimtaði að ég myndi sækja um.
Hún hefur svo mikla trú á mér og að tækifæri eins og þetta væri einum of gott til að taka ekki þátt.Hvað ert þú búin að læra í ferlinu?
Að bera höfuðið hátt og hætta að vera feimin við takast á við ný ævintýri.
Hvaða tungumál talarðu?
Íslensku og ensku.
Hvað hefur mótað þig mest?
Ég verð að segja móður hlutverkið.
Erfiðasta lífsreynslan hingað til?
Andlát bróður míns hefur verið mér erfiðast.
Hverju ertu stoltust af?
Ég er mjög stolt af syni mínum sem gerir alla daga betri, hann er klettur lífs míns.
En mest er ég stoltust af sjálfri mér.Besta heilræði sem þú hefur fengið?
„Mistakes doesn’t mean failure.“
Hvað er uppáhalds maturinn þinn?
Sushi eða rjómalagað tómatpasta.
Hver er fyrirmynd þíní lífinu?
Mamma mín fær þann titil. Hún er mín stærsta hetja og hefur alltaf verið það.
Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt?
Úff ég veit það ekki.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í?
Þegar ég var í framhaldsskóla og var á leiðinni niður í matsal. Til þess að komast þangað þurfti ég að ganga niður stórar og háartröppur, á leiðinni niður missteig ég mig og datt alla leiðina niður. Það horfðu allir á mig og hlógu. Ég fór aftur upp og fór ekki í matsalinn í viku eftir þetta.
Hver er þinn helsti ótti?
Að missa son minn og trúðar.
Hvar sérðu þig í framtíðinni?
Ég sé mig sem hrausta, skipulagða og duglega móður með fallega fjölskyldu og vonandi með atvinnu í leiklistinni.
Hvaða lag tekur þú í karókí?
Before he cheats- Carrie Underwood , allan daginn.
Þín mesta gæfa í lífinu?
Fjölskyldan mín og vinir.
Uppskrift að drauma degi?
Draumadagur væri að fá að sofa út, borða góðan morgunmat í rólegheitunum, svo kannski bara smá beauty dag, fara í spa, nudd, hár, neglur og augnhár, koma svo heim í fancy dinner með búbblum.
Hér er hægt að kjósa í Ungfrú Ísland.