Sunneva Einars tekur risastökk á tekjulista áhrifavalda Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. ágúst 2024 13:23 Sunneva er hástökkvari listans í ár en þar sitja fyrir á fleti gamalkunnug andlit, þau Eva Ruza og Gummi kíró. Vísir Skemmtikrafturinn og útvarpskonan Eva Ruza Miljevic er tekjuhæst íslenskra áhrifavalda, annað árið í röð. Á eftir henni eru Birgitta Líf Björnsdóttir, Sunneva Eir Einarsdóttir og Guðmundur Birkir Pálmason, sem betur er þekktur sem Gummi Kíró. Sunneva var ekki meðal tíu tekjuhæstu stjarnanna í fyrra og er hástökkvari á listanum í ár. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar í ár. Þar kemur fram að Eva Ruza, sem starfar meðal annars hjá útvarpsstöðinni K100, sé með rúmar 1,5 milljónir á mánuði í tekjur. Birgitta Líf markaðsstjóri World Class sé með 1,3 milljónir og Sunneva Einars sem meðal annars heldur úti hlaðvarpsþáttunum Teboðið sé með 1,2 milljónir. Hið sama gildir um kírópraktorinn og tískugúrúinn Gumma Kíró, hann er með 1,2 milljónir á mánuði samkvæmt Tekjublaðinu. Næst á eftir kemur Hjálmar Örn Jóhannsson grínisti og skemmtikraftur með eina milljón króna á mánuði. Listinn er keimlíkur þeim frá því í fyrra, árið 2023. Þá var Eva Ruza á toppnum með 1,6 milljónir, Gummi Kíró í öðru sæti með 1,3 milljónir króna en Birgitta Líf í því þriðja með 1,2 milljónir króna. Athygli vekur að Sunneva Einars komst ekki á lista tíu tekjuhæstu samfélagsmiðlastjarnanna í fyrra en situr nú í þriðja sæti. Sunneva hefur undanfarið haldið úti Teboðinu, hlaðvarpsþætti ásamt vinkonu sinni Birtu Líf. Hægt er að kaupa áskrift að hlaðvarpinu en auk þess gáfu vinkonurnar nýlega út ístegund undir merkjum hlaðvarpsins, Bestís. Förðunarfræðingar og fjölmiðlafólk Önnur nöfn á lista þeirra tíu efstu eru Binni Löve, samfélagsmiðlastjarna og ljósmyndari hjá Mbl, Magnea Björg Jónsdóttir sjónvarpskona, Indíana Nanna Jóhannsdóttir, Alexandra Bernharðsdóttir markaðsstjóri Hjá Höllu og Elísabet Gunnars, eigandi Trendnet. Reynir Bergmann rétt missir af efstu tíu sætunum með 751 þúsund krónur á mánuði í laun og situr í ellefta sæti. Á eftir honum koma þau Fanney Dóra förðunarfræðingur með 733 þúsund krónur á mánuði og Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B. Gústi lýsti því nýlega yfir að hann væri að leita sér að nýju starfi eftir að útvarpsþáttur hans Veislan var tekin af dagskrá FM957. Listi yfir tíu tekjuhæstu áhrifavaldana árið 2023: Eva Ruza Milijevic, skemmtikraftur og útvarpskona á K100 - 1,5 milljónir króna. Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class - 1,3 milljónir króna. Sunneva Eir Einarsdóttir, áhrifavaldur - Teboðið - 1,2 milljónir króna. Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi Kíró - 1,2 milljónir króna. Hjálmar Örn Jóhannsson, grínisti og áhrifavaldur 1,0 milljón króna. Brynjólfur Löve Mogensson, áhrifavaldur og ljósm. hjá MBL - 950 þúsund krónur. Magnea Björg Jónsdóttir, áhrifavaldur og sjónvarpskona - 950 þúsund krónur. Indíana Nanna Jóhannsdóttir, eig. GoMove IS. og áhrifavaldur - 814 þúsund krónur. Alexandra Bernh. Guðmundsd, áhrifav. og markstj. Hjá Höllu - 785 þúsund krónur. Elísabet Gunnarsdóttir, áhrifavaldur og eigandi Trendnet - 756 þúsund Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2022 sem var greiddur árið 2023. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Tekjur Samfélagsmiðlar Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira
Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar í ár. Þar kemur fram að Eva Ruza, sem starfar meðal annars hjá útvarpsstöðinni K100, sé með rúmar 1,5 milljónir á mánuði í tekjur. Birgitta Líf markaðsstjóri World Class sé með 1,3 milljónir og Sunneva Einars sem meðal annars heldur úti hlaðvarpsþáttunum Teboðið sé með 1,2 milljónir. Hið sama gildir um kírópraktorinn og tískugúrúinn Gumma Kíró, hann er með 1,2 milljónir á mánuði samkvæmt Tekjublaðinu. Næst á eftir kemur Hjálmar Örn Jóhannsson grínisti og skemmtikraftur með eina milljón króna á mánuði. Listinn er keimlíkur þeim frá því í fyrra, árið 2023. Þá var Eva Ruza á toppnum með 1,6 milljónir, Gummi Kíró í öðru sæti með 1,3 milljónir króna en Birgitta Líf í því þriðja með 1,2 milljónir króna. Athygli vekur að Sunneva Einars komst ekki á lista tíu tekjuhæstu samfélagsmiðlastjarnanna í fyrra en situr nú í þriðja sæti. Sunneva hefur undanfarið haldið úti Teboðinu, hlaðvarpsþætti ásamt vinkonu sinni Birtu Líf. Hægt er að kaupa áskrift að hlaðvarpinu en auk þess gáfu vinkonurnar nýlega út ístegund undir merkjum hlaðvarpsins, Bestís. Förðunarfræðingar og fjölmiðlafólk Önnur nöfn á lista þeirra tíu efstu eru Binni Löve, samfélagsmiðlastjarna og ljósmyndari hjá Mbl, Magnea Björg Jónsdóttir sjónvarpskona, Indíana Nanna Jóhannsdóttir, Alexandra Bernharðsdóttir markaðsstjóri Hjá Höllu og Elísabet Gunnars, eigandi Trendnet. Reynir Bergmann rétt missir af efstu tíu sætunum með 751 þúsund krónur á mánuði í laun og situr í ellefta sæti. Á eftir honum koma þau Fanney Dóra förðunarfræðingur með 733 þúsund krónur á mánuði og Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B. Gústi lýsti því nýlega yfir að hann væri að leita sér að nýju starfi eftir að útvarpsþáttur hans Veislan var tekin af dagskrá FM957. Listi yfir tíu tekjuhæstu áhrifavaldana árið 2023: Eva Ruza Milijevic, skemmtikraftur og útvarpskona á K100 - 1,5 milljónir króna. Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class - 1,3 milljónir króna. Sunneva Eir Einarsdóttir, áhrifavaldur - Teboðið - 1,2 milljónir króna. Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi Kíró - 1,2 milljónir króna. Hjálmar Örn Jóhannsson, grínisti og áhrifavaldur 1,0 milljón króna. Brynjólfur Löve Mogensson, áhrifavaldur og ljósm. hjá MBL - 950 þúsund krónur. Magnea Björg Jónsdóttir, áhrifavaldur og sjónvarpskona - 950 þúsund krónur. Indíana Nanna Jóhannsdóttir, eig. GoMove IS. og áhrifavaldur - 814 þúsund krónur. Alexandra Bernh. Guðmundsd, áhrifav. og markstj. Hjá Höllu - 785 þúsund krónur. Elísabet Gunnarsdóttir, áhrifavaldur og eigandi Trendnet - 756 þúsund Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2022 sem var greiddur árið 2023. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2022 sem var greiddur árið 2023. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Samfélagsmiðlar Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira