Eftir rúmlega klukkutíma í Kópavogsslag Breiðabliks og HK á sunnudaginn fengu Blikar hornspyrnu. Kristinn Jónsson tók hana og sendi inn á miðjan vítateig HK-inga þar sem fyrirliði heimamanna, Höskuldur Gunnlaugsson, kom á ferðinni og stangaði boltann í netið. Engu breytti þótt hann væri umkringdur miklu hávaxnari leikmönnum. Höskuldur með sína 173 sentímetra reis hæst, skoraði með kollspyrnu og kom Blikum í 4-2. Þeir unnu leikinn svo, 5-3.
Að skora með skalla er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar Höskuldur berst í tal. En markið hans gegn HK var kannski táknrænt fyrir hversu fjölhæfur leikmaður hann er; sannkallaður Total-fótboltamaður. Svo gerir hann líka bestu laufabrauð á Íslandi.
Þann 6. júlí gerði Breiðablik 2-2 jafntefli við nýliða Vestra á Ísafirði. Leikurinn gegn Vestra var jafnframt síðasti leikurinn í deildinni þar sem Höskuldur spilaði sem hægri bakvörður.
Eftir Vestraleikinn færði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, Höskuld á miðjuna og þar hefur hann spilað síðan þá. Og í síðustu átta leikjum deildarinnar hafa Blikar fengið 22 stig af 24 mögulegum. Þeir enduðu í 2. sæti með 49 stig, jafn mörg og Víkingar en lakari markatölu.

Höskuldur spilaði vel framan af tímabili og var kannski í fjórða gír. En eftir að hann var færður inn á miðjuna setti hann í fimmta gír og aðrir leikmenn fylgdu með. Breiðablik hefur unnið fimm leiki í röð, sjö af síðustu átta og þar á meðal eru gríðarlega sterkir útisigrar á Val, ÍA og KA.
Blikar voru svo sem langt því frá að vera í einhverjum skítamálum framan af tímabili – eftir jafnteflið við Vestramenn voru þeir í 3. sæti, sex stigum á eftir Víkingum – en það þurfti eitthvað til að kveikja almennilega á þeim. Og það gerðist við áðurnefnda breytingu.
Höskuldur er jafnvígur í vörn og sókn, skilar boltanum vel frá sér, er á fullu í níutíu mínútur og rúmlega það án þess að blása úr nös og skilar mörkum og stoðsendingum. Hann er markahæsti leikmaður Breiðabliks á deildinni með átta mörk og hefur auk þess lagt upp fimm. Samkvæmt tölfræði WyScout hafa aðeins fimm leikmenn komið að fleiri mörkum í Bestu deildinni á tímabilinu og það eru allt sóknarmenn.
Flest mörk og stoðsendingar í Bestu deild karla skv. WyScout
- Viktor Jónsson (ÍA) - 17 (16 mörk+1 stoðsending)
- Ari Sigurpálsson (Víkingur) - 15 (8+7)
- Patrick Pedersen (Valur) - 14 (13+1)
- Jónatan Ingi Jónsson (Valur) - 14 (11+3)
- Kjartan Kári Halldórsson (FH) - 14 (6+8)
- Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) - 13 (8+5 )
- Emil Atlason (Stjarnan) - 13 (11+2)
- Gylfi Þór Sigurðsson (Valur) - 12 (9+3)
- Benóný Breki Andrésson (KR) - 12 (10+2)
- Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) - 12 (6+6)
- Danijel Dejan Djuric (Víkingur) - 12 (8+4)
Tölfræðin fangar ekki allt það sem Höskuldur gerir inni á vellinum en hún gefur vísbendingu hversu mikil áhrif hann hefur á leiki. Að meðaltali á hann 39,6 sendingar í leik, 78,6 prósent þeirra heppnast, hann á þrjár fyrirgjafir í leik, fer 2,72 sinnum framhjá andstæðingum, vinnur 3,94 skallaeinvígi, helming þeirra tuttugu einvíga sem hann fer í og stelur boltanum 4,49 sinnum í leik.

Ýmislegt annað hefur þó spilað inn í gott gengi Breiðabliks á síðustu vikum en frammistaða Höskuldar. Anton Ari Einarsson hefur spilað virkilega vel í Blikamarkinu, Davíð Ingvarsson hefur komið gríðarlega sterkur inn eftir heimkomuna frá Danmörku og lagt upp sex mörk í sjö leikjum og Ísak Snær Þorvaldsson hefur hrokkið í gang eftir rólega byrjun á tímabilinu.
Svo verður að minnast á þátt Halldórs sem hefur verið afar sannfærandi í frumraun sinni í efstu deild. Enginn þjálfari hefur til að mynda fengið fleiri stig (49) á fyrsta heila tímabili sínu í efstu deild en hann.
En Höskuldur er sá sem gaf tóninn og hann hefur líklega verið besti leikmaður tímabilsins ásamt Viktori Jónssyni. Og það er hann sem Blikar treysta á að muni leiða liðið til þriðja Íslandsmeistaratitilsins í næsta mánuði.