Upp­gjörið: Aftur­elding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka for­ystu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Elmar Kári #10 skoraði opnunarmark leiksins en klúðraði síðan vítaspyrnu í uppbótartíma. Hann verður í banni í úrslitaleiknum af undarlegum ástæðum
Elmar Kári #10 skoraði opnunarmark leiksins en klúðraði síðan vítaspyrnu í uppbótartíma. Hann verður í banni í úrslitaleiknum af undarlegum ástæðum afturelding

Afturelding er í bílstjórasætinu í undanúrslita umspilseinvígi sínu gegn Fjölni eftir 3-1 sigur á heimavelli í fyrri leik liðanna. Seinni leikurinn fer fram á Fjölnisvelli næsta mánudag.

Fjölnir endaði tímabilið í Lengjudeildinni skelfilega og byrjaði þennan leik á sama hátt.

Byrjuðu með boltann en misstu hann strax frá sér. Afturelding brunaði upp, lyfti boltanum yfir vörnina á Hrannar Snæ sem brunaði meðfram endalínunni og lagði út á Aron Jóhannsson sem þrumaði honum í netið.

Eftir þessa mjög svo öflugu byrjun Aftureldingar hélst leikurinn annars í ágætis jafnvægi fram að hálfleik. Fjölnismenn meira með boltann en sköpuðu mjög lítið, Afturelding meira ógnandi í sínum aðgerðum og komust í betri færi en gerðu sér ekki mat úr því.

Aftur byrjaði Afturelding betur þegar komið var út í seinni hálfleik, en skoruðu ekki strax í þetta sinn.

Fjölni tókst að standa það af sér og jafna síðan leikinn á 64. mínútu. Miðvörðurinn Júlíus Júlíusson átti þá stórkostlegan sprett upp völlinn, skapaði algjöra óreiðu og lagði boltann til hliðar á hárréttum tímapunkti á Daníel Ingvar sem kláraði færið vel.

Leikurinn hélst þó ekki jafn nema í nokkrar mínútur. Elmar Kári tók forystuna aftur fyrir Aftureldingu með glæsilegum einleik á hægri kantinum, köttaði svo inn á vinstri fótinn og þrumaði í fjærhornið.

Síðustu rúmlega tuttugu mínúturnar buðu síðan upp á mikið fjör, Fjölnismenn voru nálægt því að jafna aftur og áttu skot í stöng en fengu síðan mark í andlitið.

Sigurpáll Melberg átti heiðurinn að því með þrumuskoti lengst fyrir utan teig sem söng í samskeytunum, í meira lagi glæsilegt mark.

Afturelding fékk tækifæri til að bæta við forystuna undir blálokin. Vítaspyrna dæmd í uppbótartíma, Elmar Kári steig á punktinn en lét verja frá sér og lokaniðurstaðan 3-1.

Atvik leiksins

Var milli tanna hjá öllum viðstöddum á vellinum. Elmar Kári í Aftureldingu fékk gult spjald fyrir dýfu. Spjaldið eitt og sér var mjög sérstakt, hann virtist ekki vera að biðja um neitt brot sjálfur, féll bara við. 

Það sem gerir atvikið svo einstakt er að Elmar verður í banni í úrslitaleiknum. Ekki í næsta leik gegn Fjölni á mánudaginn, vegna þess að aganefnd KSÍ kemur ekki saman fyrr en á þriðjudag og úrskurðar hann þá í bann.

Ef Elmar hefði fengið annað gult spjald í leiknum hefði hann verið í banni á mánudaginn. Aganefnd úrskurðar nefnilega bara um uppsöfnuð spjöld, rauð spjöld gefa sjálfkrafa leikbann. Undarlegt svo ekki sé meira sagt.

Uppfært eftir leik: Elmar nældi sér, að því virðist viljandi, í seinna gula spjaldið þegar búið var að flauta leikinn af. Hefur sagt eitthvað og verður í banni á mánudag.

Stjörnur og skúrkar

Elmar Kári frábær fyrir Aftureldingu, þeirra besti maður. Hrannar Snær á hinum kantinum líka glæsilegur í kvöld. Jökull Andrésson ógurlega öruggur í markinu.

Stemning og umgjörð

Allt til fyrirmyndar í Mosfellsbænum að vana. Ótrúlegur metnaður sem hefur verið settur í utanumhald og umgjörð á leikjunum. Enginn hárgreiðslumaður, nuddari eða húðflúrari í kvöld reyndar.

Það vantaði líka ekkert upp á stemninguna, sem hefur myndast með velgengni liðsins undanfarin ár og virðist vera að ná hæstu hæðum.

Dómarar [6]

Þórður Þorsteinn Þórðarson á flautunni. Guðmundur Ingi Bjarnason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage með flöggin. Guðmundur Páll Friðbertsson sá fjórði.

Afskaplega undarlegt spjald sem Elmari Kára var gefið, hríðlækkar einkunnina.

Annars höfðu þeir ágætis stjórn á erfiðum leik. Engin fleiri fáránleg spjöld. Leyfðu leiknum mikið að fljóta og leyfðu mönnum að takast á, sem er alltaf ánægjulegt að sjá.

Viðtöl 

Berast á Vísi innan skamms. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira