Besta deild karla

Fréttamynd

Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, er mættur heim í Þorpið og mun spila með Þór út leiktíðina í Bestu deildinni í fótbolta. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sömuleiðis kominn til Þórs, að láni frá KR.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast?

Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Virkar eins og forfallakennari

Valur hefur verið í vandræðum og upp á síðkastið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu sjö sem liðið hefur spilað. Hermann Hreiðarsson var rekinn fyrir stuttu sem þjálfari liðsins og hefur gengi liðsins ekki batnað síðan þá.

Fótbolti
Fréttamynd

Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika

Fjórtándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í gær með leik Breiðabliks og Keflavíkur. Blikar voru undir í hálfleik en sneru dæminu sér í vil í seinni hálfleik og unnu 2-1 sigur. Einn reyndasti leikmaður liðsins skoraði sigurmark þess á elleftu stundu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“

Chris Brazell, þjálfari Vals, telur að spilamennska Valsliðsins sýni að liðið sé á leið í rétta átt þrátt fyrir að það hafi lotið í lægra haldi fyrir FH í kvöld. Chris var sérstaklega sáttur við hugarfarið í fyrri hálfleiknum og spilamennskuna í fyrri hluta seinni hálfleiks. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, segir erfitt að kyngja tapi liðsins gegn KA í Bestu deildinni í kvöld, eftir að hafa verið 2-0 yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann segir sömu sögu endurtaka sig aftur og aftur og eitthvað þurfi að breytast.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Ís­landi

Á Íslandi er veðrið ekki alltaf ákjósanlegt og þar sem fótboltatímabilið byrjar snemma er oft erfitt að halda grasvöllum í toppstandi. Þá hafa einhver félög notað gervigrasvelli sem höndlar betur íslenska frostið en þegar þeir vellir verða ónýtir geta leikmenn meiðst alvarlega.

Fótbolti