Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu 24. september 2024 20:40 Nkunku hélt upp á þriðja markið með því að blása upp blöðru. Mike Hewitt/Getty Images Enzo Maresca skipti öllu byrjunarliði sínu út frá deildarsigri laugardagsins á West Ham United, enda úr sérlega stórum leikmannahópi að velja. D-deildarlið Barrow var ekki mikil fyrirstaða fyrir sterkt „varalið“ Chelsea. Christopher Nkunku skoraði fyrstu tvö mörk Lundúnaliðsins áður en korter var liðið og þá þýddi sjálfsmark Barrow-liðsins að staðan var 3-0 í hálfleik. Portúgalinn Pedro Neto skoraði snemma í síðari hálfleik áður en Nkunku skoraði sitt þriðja mark til að innsigla 5-0 sigur Chelsea. Chelsea er því komið áfram í fjórðu umferð keppninnar. Enski boltinn
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Leiknir 1-1 | Umdeilt víti færði Víkingum stig Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Leiknir 1-1 | Umdeilt víti færði Víkingum stig Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti