Rigning eða slydda norðan- og austanlands Atli Ísleifsson skrifar 26. september 2024 07:13 Hiti verður núll til níu stig að deginum í dag og verður mildast syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag þar sem yfirleitt má reikna með vindi þremur til tíu metrum á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að smá lægðardrag fyrir norðan land þokist nú suður og fylgi því dálítil rigning eða slydda norðan og austanlands í dag og sums staðar á Suður- og Vesturlandi í fyrramálið. Síðan styttir að mestu upp, þó má áfram búast við einhverri vætu suðaustanlands. Annað kvöld er síðan spáð stöku éljum norðaustantil á landinu. Hiti 0 til 9 stig að deginum, mildast við suðurströndina, en vægt frost í innsveitum á Norðausturlandi á morgun. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan- og norðaustan 3-10 m/s. Dálítil rigning eða slydda á Suður- og Vesturlandi, en snjómugga norðaustantil. Styttir síðan að mestu upp. Hiti 2 til 8 stig yfir daginn, en kringum frostmark norðaustanlands. Á laugardag: Austan 3-8 og rigning eða slydda með köflum um landið sunnan- og vestanvert, en dálítil snjókoma norðaustanlands síðdegis. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Austlæg átt og slydda, rigning eða snjókoma norðan heiða fram eftir degi, en úrkomulítið syðra. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á mánudag: Vestlæg átt, skýjað og sums staðar lítilsháttar rigning eða slydda. Áfram svalt í veðri. Á þriðjudag: Suðvestanátt og súld eða rigning, fyrst vestanlands, en þurrt á Austur- og Suðausturlandi. Heldur hlýnandi. Á miðvikudag: Breytileg átt og rigning með köflum.
Veður Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Köld norðanátt og víða él Stöku él og vaxandi norðaustanátt Skúrir eða él á víð og dreif Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Gular viðvaranir í borginni og víðar Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt Kaldri norðlægri átt beint til landsins Gul viðvörun á Vestfjörðum Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Hiti að sex stigum Norðanátt og éljalofti beint til landsins Áfram kalt og bætir í vind á morgun Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Sjá meira