Erlent

Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda

Agnar Már Másson skrifar
Þotu sem notuð er í leitina hefur verið flogið í kringum það svæði þar sem staðsetningamerki sjúkraflugvélarinnar datt út. 
Þotu sem notuð er í leitina hefur verið flogið í kringum það svæði þar sem staðsetningamerki sjúkraflugvélarinnar datt út.  FlightRadar

Bandaríska strandgæslan leitar nú að sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í dag. Sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda.

New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan sex að íslenskum tíma en um er að ræða þotu af tegundinni Gulfstream G100.

Leit hefur staðið yfir við strendur Nantucket og stóð enn yfir klukkan 15.45 að því er New York Times hefur eftir strandgæslunni. Gæslan hafi ræst út flugvélar, þyrlu og tvo báta frá Þorskhöfða í Massachusetts.

Týnda vélin er á vegum kanadíska sjúkraflugfélagsins Latitude Air Ambulance, að því er Clarence Togeretz, talsmaður fyrirtækisins, segir við fjölmiðilinn.

Vélin tók á loft frá flugvellinum á Bermuda um klukkan 2.41 í nótt að íslenskum tíma samkvæmt flugkorti. Svo virðist sem vélin hafi flogið í 24 þúsund feta hæð áður en flugið lækkaði um nokkur þúsund fet um klukkan 4.05 að íslenskum tíma.

Sérfræðingar telja lækkunina óvenjulega. „Ég myndi segja að þetta sé til marks um verulegt vandamál,“ er haft eftir Brad Wheeler, sem starfaði sem flugmaður í 40 ár, í umfjöllun Times.

„Það er ljóst að eitthvað hafi farið úrskeiðis vegna þess að þeir breyttu hraðanum rétt áður en þeir lækkuðu,“ segir Mary Chiavo, lögmaður sem sérhæfir sig í flugmálum og fyrrverandi ráðamaður hjá samgöngustofu Bandaríkjanna. „Þeir voru að bregðast við einhverju.“

Flugvélin var á ferð nokkuð norður af Bermúdaþríhyrningnum svokallaða, sem er margumtalað svæði á Atlantshafi þar sem flugvélar og skip eru sögð hafa horfið áður. Um 65 þúsund manns búa á Bermúda, sem er sjálfstjórnarsvæði sem heyrir undir bresku krúnuna.

Vélin hefur á síðustu vikum farið fjölda ferða, þar á meðal eina á milli Bermúda og Boston hinn 24. september, en um er að ræða um 1.255 kílómetra leið. Vélin var framleidd í Ísrael árið 1996 og samkvæmt opinberum skjölum virðist hún áður hafa verið nýtt sem einkaþota áður en hún gar tekin í gagnið sem sjúkraflugvél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×