Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Jón Ísak Ragnarsson skrifar 30. september 2024 21:15 Ólafur Ragnar Grímsson var forseti Íslands frá 1996 til 2016. Vísir/Arnar „Atburðarásin [hefur] verið ótrúleg - og óþörf ef Davíð Oddsson og ríkisstjórnin hefðu viljað taka skynsamlega á málum. Heiftin og löngunin til að sýna valdið hefur knúið hann áfram og svo ógnar hann öllum öðrum í sínu liði.“
Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands í dagbókarfærslu frá 22. maí 2004, um atburðarásina í kringum fjölmiðlafrumvarpið. Bókin „Þjóðin og valdið - Fjölmiðlalögin og Icesave“ kemur út á vegum Forlagsins á morgun, en hún hefur að geyma dagbókarfærslur Ólafs Ragnars frá forsetatíð hans. „Í forsetatíð sinni hélt Ólafur Ragnar Grímsson ítarlegar dagbækur, skráði frásagnir af atburðum og samræðum við ráðherra og forystufólk ... Þessar dagbækur eru því einstæð heimild,“ segir um bókina. Ólafur Ragnar varð fyrstur forseta til að synja lögum þegar hann neitaði að undirrita fjölmiðlalögin umdeildu árið 2004. Miklar deilur urðu um málið sem endaði með því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins dró lögin til baka. Ekki kom til þjóðaratkvæðagreiðslu. Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra stóð í miklum deilum við forsetann. Ólafur vísaði Icesave-samningunum umdeildu svo tvívegis í þjóðaratkvæðagreiðslu um sex árum síðar. Davíð virði engin siðalögmál „Samtal mitt við Davíð Oddsson hér á Bessastöðum 17. maí sýndi mér ótvírætt að hann virðir ekki lengur neinar stjórnarfarsreglur eða siðalögmál; er með puttana í lögreglu- og skattarannsóknum, hótar, er með dylgjur, ósvífni, nánast eins og í þriðja heims landi þar sem valdið og ógnin ráða öllu; lán að hann hefur ekki her eða leynilögreglu til að beita. Hugsar og hegðar sér eins og fasisti; valdið réttlætir allt. Út frá þessu einu væri siðferðislega rétt vegna lýðræðisins í landinu að setja honum stólinn fyrir dyrnar með því að vísa málinu til þjóðarinnar.“ Davíð árið 1991 þegar hann vann Þorstein Pálsson í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins.Vísir/GVA Svo hljóðar framhald sömu dagbókarfærslu og vísað var í áðan, sem skrifuð var 22. maí 2004. Þar segir að Guðni Ágústsson, þáverandi varaformaður Framsóknarflokksins, hafi hringt í Ólaf og sagst styðja hann „eins og alltaf frá upphafi.“ Hann hafi fordæmt ummæli sem Davíð lét falla um Ólaf í sjónvarpinu 14. maí. Ólafur segir síðar að öll taktík Davíðs hafi gengið út frá því að hann myndi skrifa undir lögin. „Öll hans taktík hefði miðast við það, árásirnar á mig og embættið, að niðurlægja mig í trausti þess að ég myndi skrifa undir,“ segir í færslu frá 11. ágúst 2004. Jóhanna hafi gert afdrifarík mistök Ólafur segir að Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi forsætisráðherra hafi gert afdrifarík mistök, þegar hún var sífellt með yfirlýsingar um að þjóðaratkvæðagreiðslan um fyrri Icesave-samningana væri marklaus, og hún ákvað að kjósa ekki. „Þau mistök urðu enn skýrari þegar Össur fór og kaus og Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, sem stýrt hafði lögunum í gegnum Alþingi ... Svavar Gestsson sagðist líka ætla að sitja heima. Hvílíkur ósigur fyrir hann þegar þjóðin hafnar jafn afgerandi hans verkum,“ segir Ólafur 8. mars 2010. Ólafur velti vöngum yfir áhrifum Davíðs Oddsonar á afstöðu Alþingis í Icesave málinu í færslu 6. júlí 2009. Davíð Oddsson hafði farið í viðtal við Morgunblaðið, sem Ólafur kallar „ayatollaviðtalið“ þar sem hann líkti Icesave-samningi Svavars Gestssonar við Gamla sáttmála og aldafjötur Íslands frá 1262. Ólafur segir að Jóhanna hafi gert afdrifarík mistök, þegar hún kaus ekki í atkvæðagreiðslunni um Icesave-samningana.Vísir/Stöð 2 „Við ræddum líka viðtalið við Davíð Oddsson ... Svo gæti verið að þetta risaútspil Davíðs yrði til að þjappa stjórnarliðinu saman; erfitt fyrir VG-liðið að vera með Davíði Oddssyni! Einnig gæti þetta linað andstöðu í Sjálfstæðisflokknum því erfitt væri fyrir hina nýju forystu að festa í sessi þetta nýja ayatollakerfi; þ.e. að Davíð sæti út í bæ og gæfi línu í stóru málunum.“ Pólitískur styrkur ríkisstjórnar lítill eftir seinni atkvæðagreiðslu „Hádegisverðurinn með Jóhönnu Sigurðardóttur gekk vel, eiginlega mun betur en ég átti von á, stóð í tæpar tvær klukkustundir. Hún virðist vera búin að jafna sig á Icesave-neitun forsetans!“ segir Ólafur 25. júní 2010. Ólafur spurði hana svo um stöðu ríkisstjórnarinnar, og Jóhanna svaraði því meðal annars að Jón Bjarnason væri áfram til vandræða, hann kynni ekki að vera ráðherra. „Vandinn væri hins vegar pólitískur styrkur stjórnarinnar. Oft fyndist henni hún vera með minnihlutastjórn. Sumir nefndu að það ætti að taka Framsóknarflokk inn en hún treysti ekki Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Það væri oft eins og hann væri ekki í lagi, hlypi út og inn og ekki hægt að reiða sig á hann, Jóhanna nefndi líka að Davíð væri alltaf að hjóla í hana og spurði hvað vekti fyrir honum. Ég sagði að hann væri bara að skemmta sér. Hún taldi að hann væri í illgjörnum ham.“
Alþingi Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Sjá meira