Nottingham Forest og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Staðan var markalaus í hálfleik en á 49. mínútu kom Chris Wood Forest yfir. Nýsjálendingurinn hefur skorað fjögur af sjö mörkum Forest í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Forysta heimamanna entist aðeins í átta mínútur því Noni Madueke jafnaði á 57. mínútu. Hann er kominn með fjögur deildarmörk í vetur.
Forest lék manni færri síðustu tólf mínútur leiksins eftir að James Ward-Prowse fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 78. mínútu.
Chelsea tókst hins vegar ekki að nýta sér liðsmuninn og Forest hélt stiginu. Lokatölur 1-1.
Chelsea er í 4. sæti deildarinnar með fjórtán stig en Forest í 9. sætinu með tíu stig.