Sport

McGregor sakaður um nauðgun

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Conor McGregor.
Conor McGregor. Vísir/Getty

Bardagakappinn Conor McGregor er sakaður um að hafa nauðgað konu í Dublin á Írlandi árið 2018. 

Hinn 36 ára gamli McGregor mætti fyrir dómara á þriðjudag þar sem lögmaður konunnar sagði hennar hlið á málinu. McGregor neitar sök og segja lögmenn hans að konan sé að reyna kúga pening úr UFC-stjörnunni.

McGregor var einnig sakaður um kynferðisofbeldi á síðasta ári en þá í Bandaríkjunum. Það mál var fellt niður. Hvað þetta mál varðar þá segir í frétt Sky Sports að um sé að ræða atvik frá 9. desember 2018. Um er að ræða skaðabótamál en ekki kemur fram hversu miklar skaðabætur konan fer fram á.

Lögmaður konunnar fór yfir frásögn hennar fyrir dómi, þar segir að konan og McGregor hafi þekkt hvort annað lengi vel enda á svipuðum aldri og frá sama svæði. Kvöldið 9. desember 2018 hafi hún verið úti að skemmta sér ásamt vinkonu sinni þegar hún hafði samband við McGregor sem var einnig úti að skemmta sér. 

Töldu vinkonurnar að þær væru á leið í frekari skemmtun á skemmtistöðum borgarinnar en eftir að McGregor sótti þær hafi bílstjóri hans keyrt með þau á Beacon Hill-hótelið. Þar hafi þau ásamt nokkrum öðrum haldið áfram að drekka áður en McGregor hafi ítrekað reynt að fá hana með sér inn í svefnherbergi. Hún hafi neitað þar sem hún væri í sambandi og á blæðingum.

Sky greinir frá því að á endanum hafi McGregor náð konunni inn í svefnherbergi þar sem hann hélt henni niðri í rúminu áður en hann sneri henni við og tók hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún náði ekki andanum. 

Lögmaður konunnar sagðist vera með myndir sem sýndu hversu marin hún var og að úlnliðir hennar hefðu verið bláir eftir átökin. Einnig mun hún hafa verið með fjölda skurða eftir að hafa reynt að verja sig og þá voru fjórar af gervinöglum hennar brotnar.

Morguninn eftir hafi konan heimsótt móður sína og í kjölfarið hafi verið ákveðið að hringja á sjúkrabíl. Þar hafi hún skolfið af sársauka og grátið meðan hún var skoðuð af lækni sem staðfesti fjölda áverka á líkama hennar.

Írski hluti miðilsins Mirror greinir frá talsvert fleiri upplýsingum en Sky og vitnar í Dr. Daniel Kane, lækninn á vakt þegar konan kom á sjúkrahúsið. Hann lýsir meðal annars marblettum og skurðum á mun fleiri stöðum en aðeins úlnliðum konunnar. 

Þá var konan með túrtappa skorðaðan ofarlega í sköpum sínum. Þurfti læknirinn að nota töng til að ná túrappanum út.

Talið er það taki um tvær vikur að komast að niðurstöðu í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×