Enski boltinn

Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bernardo Silva ræðir málin við knattspyrnustjórann Pep Guardiola í leiknum í Lissabon í gærkvöldi.
Bernardo Silva ræðir málin við knattspyrnustjórann Pep Guardiola í leiknum í Lissabon í gærkvöldi. Getty/Gualter Fatia

Manchester City tapaði ekki aðeins þriðja leik sínum í röð í gærkvöldi heldur steinlá liðið 4-1 á móti portúgalska liðinu Sporting CP frá Lissabon.

Portúgalinn Bernardo Silva bar fyrirliðabandið hjá Manchester City í leiknum í gær og hann var þungur eftir leikinn.

„Í byrjun seinni hálfleiksins þá gáfum við þeim bara of mörg tækifæri til að skora,“ sagði Bernardo Silva en City menn komust yfir snemma leiks. Það var staðan 1-1 í hálfleik en eftir aðeins fjögurra mínútna leik í síðari hálfleik var staðan orðin 3-1 fyrir Sporting.

„Þetta eru vonbrigði því við erum á dimmum stað akkúrat núna. Það gengur ekkert upp hjá okkur ekki einu sinni þegar við erum að spila vel,“ sagði Silva.

Þurfum auðvitað að horfa inn á við

„Við þurfum auðvitað að horfa inn á við, skoða það sem við erum ekki að gera vel og byrja mjög fljótt að gera betur. Annars verður mjög erfitt fyrir okkur að koma til baka eftir alla þessa tapleiki,“ sagði Silva.

City er að glíma við meiðsli margra lykilmanna sem hefur ekki auðveldað hlutina fyrir lærisveina Pep Guardiola.

Þrjú töp í röð á einni viku. Liðið datt út úr deildabikarnum á móti Tottenham í síðustu viku og tapaði á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Liðið hafði þá leikið 32 deildarleiki í röð án taps. Þetta er fyrsta sinn frá árinu 2018 sem City tapar þremur leikjum í röð í öllum keppnum.

Man ekki eftir svona

„Svona er bara fótboltinn. Það er erfitt að finna ástæðurnar fyrir því hvað er að gerast hjá okkur núna. Ég man ekki eftir svona á sjö og hálfu ári mínu hjá félaginu. Það er eins og ekkert gangi upp hjá okkur,“ sagði Silva.

„Auðvitað þurfum við að gera betur. Meiddu mennirnir þurfa að koma til baka sem fyrst því við þurfum á þeim að halda. Þetta er ekki nógu gott,“ sagði Silva.

Rodri, Jack Grealish, Rúben Dias og John Stones eru allir frá vegna meiðsla og hinn nítján ára gamli Jahmai Simpson-Pusey var í byrjunarliðinu.

Næsti leikur Manchester City er síðan á móti Brighton and Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×