Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sindri Sverrisson skrifar 11. nóvember 2024 12:32 Valjmir Fetiu hefur verið úrskurðaður í sex mánaða bann frá taekwondo eftir að hann sló dóttur sína í andlitið. Twitter Faðir og þjálfari hinnar átta ára gömlu Valinu Fetiu beitti hana ofbeldi eftir að hún tapaði úrslitabardaga á Evrópumóti barna í taekwondo í Tirana í Albaníu. Hann hefur nú verið úrskurðaður í hálfs árs bann. Valina Fetiu, sem er frá Kósovó, komst í úrslit í sínum flokki á mótinu en varð þar að játa sigraða gegn hinni serbnesku Ninu Savic sem þar með hlaut gullverðlaun. Strax eftir bardagann kom Fetiu til þjálfara síns, Valjmir Fetiu, sem jafnframt er pabbi hennar. Hann reif harkalega í hjálm Valinu og losaði hann, áður en Valina kraup niður grátandi. Pabbi hennar skipaði henni að standa á fætur og sló hana svo kinnhest. Trener sa tzv. Kosova ošamario je devojčicu Valine Fetiu (8) nakon što je izgubila od Srpkinje, a pogledajte šta se desilo nakon toga.Skandalozna scena desila se u Tirani, na Evropskom prvenstvu u tekvondou za decu. pic.twitter.com/0rwzeGHxbI— Pepo portal (@pepoportal) November 10, 2024 Þetta sá dómari viðureignarinnar sem virtist reyna að skipa pabbanum að hafa hemil á sér, og skoðaði einnig nafnspjald hans. Pabbinn hefur nú verið dæmdur í sex mánaða bann frá allri keppni í taekwondo, af evrópska taekwondo-sambandinu. Eftir að hafa orðið sér til ævarandi skammar með því að brjóta gegn eigin barni, átta ára gömlu, reyndi pabbinn að réttlæta hegðun sína í viðtali við miðilinn Klan Kosova í heimalandi sínu. „Hún er dóttir mín og enginn elskar hana meira en ég. Á þessu augnabliki var hún reið og ekki með sjálfri sér, eftir að hafa tapað gegn serbneska keppandanum, og hún lá í jörðinni og gat ekki sætt sig við að hafa tapað. Ég vildi bara róa hana niður og láta hana vita að þó að hún hefði tapað þá hefði hún náð öðru sæti og að hún fengi fleiri tækifæri,“ sagði pabbinn, Valjmir Fetiu, og vildi meina að serbneskir miðlar væru með áróður gegn sér, þrátt fyrir að myndband af obeldi hans segi sína sögu. „Fjölmiðlar í Kósovó féllu fyrir áróðri Serba sem reyndu að gefa þessu atviki aðra merkingu. Ég endurtek, ég er pabbi hennar. Eiginkona mín og móðir Valinu var þarna nokkra metra í burtu. Enginn Serbi eða Bosníu maður gæti elska dóttur sína meira en við gerum. Ég var búinn að vinna með Valinu í tólf mánuði fyrir þessa keppni og ég mun halda áfram alla ævina,“ sagði pabbinn. Í þessari grein er fjallað um ofbeldi gegn barni. Börn og unglingar sem verða fyrir ofbeldi á heimili sínu eða annars staðar geta sjálf leitað til Barnaverndarnefndar. Allir eru skyldugir samkvæmt íslenskum lögum að tilkynna til lögreglu eða barnaverndarnefndar ef grunur er um að barn sé beitt ofbeldi, það verði fyrir áreitni eða búi við óviðunandi uppeldisaðstæður. Sá sem tilkynnir þarf ekki að hafa rökstuddan grun um að brotið sé gegn barni. Taekwondo Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Fleiri fréttir Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Sjá meira
Valina Fetiu, sem er frá Kósovó, komst í úrslit í sínum flokki á mótinu en varð þar að játa sigraða gegn hinni serbnesku Ninu Savic sem þar með hlaut gullverðlaun. Strax eftir bardagann kom Fetiu til þjálfara síns, Valjmir Fetiu, sem jafnframt er pabbi hennar. Hann reif harkalega í hjálm Valinu og losaði hann, áður en Valina kraup niður grátandi. Pabbi hennar skipaði henni að standa á fætur og sló hana svo kinnhest. Trener sa tzv. Kosova ošamario je devojčicu Valine Fetiu (8) nakon što je izgubila od Srpkinje, a pogledajte šta se desilo nakon toga.Skandalozna scena desila se u Tirani, na Evropskom prvenstvu u tekvondou za decu. pic.twitter.com/0rwzeGHxbI— Pepo portal (@pepoportal) November 10, 2024 Þetta sá dómari viðureignarinnar sem virtist reyna að skipa pabbanum að hafa hemil á sér, og skoðaði einnig nafnspjald hans. Pabbinn hefur nú verið dæmdur í sex mánaða bann frá allri keppni í taekwondo, af evrópska taekwondo-sambandinu. Eftir að hafa orðið sér til ævarandi skammar með því að brjóta gegn eigin barni, átta ára gömlu, reyndi pabbinn að réttlæta hegðun sína í viðtali við miðilinn Klan Kosova í heimalandi sínu. „Hún er dóttir mín og enginn elskar hana meira en ég. Á þessu augnabliki var hún reið og ekki með sjálfri sér, eftir að hafa tapað gegn serbneska keppandanum, og hún lá í jörðinni og gat ekki sætt sig við að hafa tapað. Ég vildi bara róa hana niður og láta hana vita að þó að hún hefði tapað þá hefði hún náð öðru sæti og að hún fengi fleiri tækifæri,“ sagði pabbinn, Valjmir Fetiu, og vildi meina að serbneskir miðlar væru með áróður gegn sér, þrátt fyrir að myndband af obeldi hans segi sína sögu. „Fjölmiðlar í Kósovó féllu fyrir áróðri Serba sem reyndu að gefa þessu atviki aðra merkingu. Ég endurtek, ég er pabbi hennar. Eiginkona mín og móðir Valinu var þarna nokkra metra í burtu. Enginn Serbi eða Bosníu maður gæti elska dóttur sína meira en við gerum. Ég var búinn að vinna með Valinu í tólf mánuði fyrir þessa keppni og ég mun halda áfram alla ævina,“ sagði pabbinn. Í þessari grein er fjallað um ofbeldi gegn barni. Börn og unglingar sem verða fyrir ofbeldi á heimili sínu eða annars staðar geta sjálf leitað til Barnaverndarnefndar. Allir eru skyldugir samkvæmt íslenskum lögum að tilkynna til lögreglu eða barnaverndarnefndar ef grunur er um að barn sé beitt ofbeldi, það verði fyrir áreitni eða búi við óviðunandi uppeldisaðstæður. Sá sem tilkynnir þarf ekki að hafa rökstuddan grun um að brotið sé gegn barni.
Í þessari grein er fjallað um ofbeldi gegn barni. Börn og unglingar sem verða fyrir ofbeldi á heimili sínu eða annars staðar geta sjálf leitað til Barnaverndarnefndar. Allir eru skyldugir samkvæmt íslenskum lögum að tilkynna til lögreglu eða barnaverndarnefndar ef grunur er um að barn sé beitt ofbeldi, það verði fyrir áreitni eða búi við óviðunandi uppeldisaðstæður. Sá sem tilkynnir þarf ekki að hafa rökstuddan grun um að brotið sé gegn barni.
Taekwondo Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Fleiri fréttir Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Sjá meira