Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu S4S 18. nóvember 2024 09:34 „Rafrænu gjafakortin hafa notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og eru sem dæmi frábær jólagjöf til starfsfólks fyrirtækja,“ segir Jón Birgir Valsson, sölustjóri fyrirtækjasviðs S4S. Rafrænu gjafakortin frá S4S hafa notið mikilla vinsælda frá því þau komu á markað árið 2021. Eigandi kortsins fær það beint í veskið í símanum sínum og getur notað það í tólf verslunum og sex netverslunum þar sem valið stendur á milli rúmlega 15.000 vara. Og það besta er, kortið rennur aldrei út. „
Rafrænu gjafakortin hafa notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og eru sem dæmi frábær jólagjöf til starfsfólks fyrirtækja,“ segir Jón Birgir Valsson, sölustjóri fyrirtækjasviðs S4S. „Gott vöruúrval þýðir líka að flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru góðir skór, útivistarfatnaður, íþróttavörur eða rafhjól svo nokkur dæmi séu tekin. Meðal verslana okkar eru Steinar Waage, Ellingsen, Kaupfélagið, Skechers, Air og Ecco. Þess má líka geta að hægt er að nýta kortið í S4S Premium Outlet-inu okkar í Holtagörðum og á útsölum, tilboðsdögum og nettilboðsdögum.“ Rafræna gjafakortið frá S4S er alltaf til staðar í símanum og rennur aldrei út. Það er því ekki skrýtið að stjórnendur margra fyrirtækja kjósi að kaupa gjafakortin ár eftir ár segir Jón Birgir. „Starfsfólk fyrirtækja þeirra hafa lýst yfir mikilli ánægju með gjafakortin. Enda er þetta svo þægilegt fyrir alla. Við fáum nafnalista starfsfólks frá fyrirtækjunum, símanúmer, upphæð og viðeigandi skilaboð. Næst sendum við gjafakortin í síma starfsfólks og þau nýta inneignina hjá fjölmörgum verslunum okkar. Þetta hentuga ferli skilur að auki eftir sig sáralítil kolefnisspor.“ Kortið lætur vita af tilboðum Gjafakortin búa líka yfir þeim skemmtilega eiginleika að ef korthafi er nálægt einni af verslunum S4S, fær hann skilaboð um að hann eigi inneign í viðkomandi verslun. „Eigandi kortsins fær líka skilaboð um sérafslætti og tilboð og þetta hefur eðlilega mælst mjög vel fyrir.“ Flestir þekkja að hafa átt gjafakort eða gjafabréf og gleymt því ofan í skúffu eða jafnvel týnt því. „Það gerist ekki hjá okkur enda er kortið alltaf bundið símanum og rennur ekki út. Eigandi þess getur alltaf séð hversu mikla inneign hann á hverju sinni auk þess sem andvirði skilavara getur líka farið inn á gjafakortið. Fyrir vikið erum við að sjá fram á nánast fulla nýtingu á kortunum undanfarin ár.“ Sumir kjósta að fá gjafakortin í pappírsformi og er þeim óskum að sjálfsögðu mætt með bros á vör. Gjafakort S4S eru því tilvalin í jólapakka starfsfólks, sem umbun til starfsfólks og auðvitað líka sem tækifærisgjöf allt árið um kring. „Einnig má benda á að við bjóðum upp á svokallað beiðnakort sem er helst ætlað fyrirtækjum sem þurfa að sjá starfsfólki sínu fyrir t.d. skóm og fatnaði en þá getur viðkomandi starfsmaður séð um þau kaup sjálf í verslunum okkar. Það hefur verið mikil sala á þessum kortum í ár hjá okkur.“ Nánari upplýsingar á vef S4S.
Jól Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Lífið
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Lífið