Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Eiður Þór Árnason skrifar 16. nóvember 2024 08:05 Gufustrókar frá Hellisheiðarvirkjun í morgunsárið. vísir/vilhelm Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs gilda fram eftir morgni á Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. Viðvörun vegna hvassviðris eða storms gildir á Suðurausturlandi fram til klukkan 16 í dag.
Þar er spáð norðvestan 15 til 23 metrum á sekúndu og vindhviðum yfir 30 metrum á sekúndu, hvassast austantil. Varasamt ferðaveður er í öllum landshlutum þar sem viðvörun gildir. Á landinu í dag er spáð norðvestan 15 til 25 metrum á sekúndu, hvassast suðaustantil, en hægari vestanlands. Snjókoma á Norður- og Austurlandi, en þurrt á sunnanverðu landinu. Hiti um eða undir frostmarki. Dregur úr vindi og ofankomu í dag. Norðan 8 til 15 metrar á sekúndu í kvöld og á morgun og él, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Kólnandi veður, frost 2 til 8 stig á morgun. Rok vegna djúprar lægð fyrir austan land Í nótt hefur verið norðvestan stormur eða rok á svæðinu frá Melrakkasléttu og til suðurs um Austurland og að sunnanverðum Vatnajökli. Einnig hefur verið hríðarveður norðan- og austanlands. Þessu veldur djúp lægð fyrir austan land ásamt hæð yfir Grænlandi, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Lægðin fjarlægist í dag og veður skáni smám saman. Undir kvöld verði vindur orðinn víða á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu (kaldi eða stinningskaldi) með éljum fyrir norðan- og austan, en bjart sunnan heiða. Að sögn veðurfræðings helst þetta veður áfram út morgundaginn og virðist í raun eiga að haldast með litlum breytingum fram í miðja næstu viku. Þá kólni með þrálátri norðanátt og megi búast við frosti á bilinu 3 til 10 stig fyrripart næstu viku. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Norðanátt, víða 8-15 m/s og él, en yfirleitt þurrt og bjart sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig. Á fimmtudag: Sunnan 3-10 vestast á landinu og líkur á dálítilli snjókomu. Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt annars staðar og bjart með köflum. Áfram kalt í veðri.Á föstudag: Líkur á norðanátt með éljum fyrir norðan, en léttskýjað sunnantil. Frost um allt land.
Veður Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Þrettán þúsund hafa skrifað undir Innlent Fleiri fréttir Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Sjá meira