Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Íþróttadeild Vísis skrifar 16. nóvember 2024 18:59 Ísland fagnar öðru af tveimur mörkum liðsins gegn Svartfjallalandi. EPA-EFE/STRINGER Ísland vann 2-0 ytra gegn Svartfjallalandi í næstsíðustu umferð Þjóðadeildarinnar. Skipting sem var gerð um miðjan seinni hálfleik breytti leiknum. Mikael Egill Ellertsson og Ísak Bergmann Jóhannesson stigu þá inn á völl, annar þeirra lagði síðan upp og hinn skoraði.
Byrjunarlið Þrjár breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu frá síðasta landsleik.EPA-EFE/STRINGER Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður [8] Flott fyrsta varsla eftir þrumuskot á rammann á upphafsmínútunum. Átti aðra frábæra vörslu, skalli á markið af stuttu færi og snögg viðbrögð. Svartfellingar skoruðu síðan úr frákastinu, markið fékk ekki að standa en hefði gert það ef Hákon hefði ekki varið fyrsta skallann. Hafði lítið að gera þess fyrir utan, en var öruggur í öllum sínum aðgerðum og úthlaupum og hélt markinu hreinu. Valgeir Lunddal Friðriksson, hægri bakvörður [7] Valgeir var á varamannabekknum í fyrstu tveimur leikjum Þjóðadeildarinnar en hefur núna byrjað þrjá í röð og virðist vera ofar í goggunarröðinni en Guðlaugur Victor Pálsson. Stefan Ivanovic/Pixsell/MB Media/Getty Images Búinn að eigna sér hægri bakvarðarstöðuna og er vel að henni kominn. Traustur varnarlega og á oft fína spretti sóknarlega þó hann sé ekki eins ógnandi og Logi hinum megin. Sverrir Ingi Ingason, miðvörður [6] Er stundum illa staðsettur, á það til að æða upp með sóknarmanni og fá boltann yfir sig. Gerðist rétt eftir að Ísland komst yfir og leiddi næstum því til jöfnunarmarks Svartfjallalands, en sem betur fer vann Guðlaugur vel undir hann og bjargaði málunum. Markið hélst hreint samt sem áður og yfir því verður ekki kvartað. Aron Einar Gunnarsson, miðvörður, spilaði of lítið til að fá einkunn Byrjaði sem miðvörður í fyrsta landsleiknum í heilt ár en þurfti að víkja af velli vegna meiðsla eftir aðeins átján mínútur. Aron hélt um aftanvert lærið og mun ólíklega getað tekið þátt gegn Wales á þriðjudaginn. Logi Tómasson, vinstri bakvörður [6] Logi Tómasson skoraði tvö eftirminnileg mörk gegn Wales í síðasta landsleikjaglugga.Stefan Ivanovic/Pixsell/MB Media/Getty Images Sótti upp vænginn og ógnaði sóknarlega. Fékk gult spjald fyrir óþarfa brot undir lok fyrri hálfleiks og verður því í banni gegn Wales á þriðjudag. Stefán Teitur Þórðarson, miðjumaður [6] Stefán Teitur var mættur aftur á miðjuna eftir að hafa tekið út bann í síðasta leik.Stefan Ivanovic/Pixsell/MB Media/Getty Images Vallaraðstæður gerðu honum erfitt fyrir, boltinn rúllaði illa og skoppaði skringilega, erfitt að keyra upp völlinn til að taka þátt í sóknarleiknum eins og hann gerir oft svo vel. Gerðist ekki sekur um mörg mistök en skapaði heldur ekkert. Var tekinn af velli á 68. mínútu fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson. Arnór Ingvi Traustason, miðjumaður [7] Arnór Ingvi TraustasonEPA-EFE/STRINGER Þindarlaus og út um allt, endalaus vinnsla og dugnaður. Komst í hörkufæri og átti fast skot framhjá markinu eftir um hálftíma leik. Reyndi að sprengja upp í skyndisókn í upphafi seinni hálfleiks, var rifinn niður og fiskaði gult spjald á Svartfelling. Jóhann Berg Guðmundsson, hægri kantmaður [6] Jóhann byrjaði á hægri vængnum, sem er hans upprunalega staða en undanfarið hefur hann mikið verið á miðjunni.Stefan Ivanovic/Pixsell/MB Media/Getty Images Sótti mikið inn á völlinn. Fékk fínt færi rétt fyrir hálfleik en náði ekki nógu góðu skoti. Var meira úti á kanti í fyrri hálfleik en var í raun orðinn miðjumaður í seinni hálfleik. Vildi komast á boltann og stýra spilinu. Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri kantmaður [5] Jón Dagur tók út leikbann í síðasta landsleik en mætti aftur á vinstri vænginn í dag. EPA-EFE/STRINGER Gaf frábæra stungusendingu á Orra Stein og skapaði fyrsta dauðafæri leiksins eftir um tíu mínútur. Sást afar lítið til hans eftir það. Var tekinn af velli á 68. mínútu fyrir Mikael Egil. Orri Steinn Óskarsson, framherji [8] Orri Steinn Óskarsson skoraði glæsilegt mark í síðasta landsleik gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli. Stefan Ivanovic/Pixsell/MB Media/Getty Images Klúðraði dauðafæri eftir rétt rúmar tíu mínútur. Völlurinn ekki að hjálpa og móttakan erfið en illa farið með frábært færi, skaut fyrst í varnarmann og svo í hliðarnetið. Fékk aftur góða stöðu í upphafi seinni hálfleiks, hitti þá á markið en það var varið. Andri Lucas var í hættulegu hlaupi og hefði eflaust þegið sendingu. Það tókst þó í þriðju tilraun að koma boltanum í netið. Var vel staðsettur og kláraði færið af yfirvegun eftir flottan undirbúning. Andri Lucas Guðjohnsen, framherji [6] Andri Lucas Guðjohnsen leitar mikið niður á völlinn og er mikilvægur uppspilspunktur fyrir Ísland. Stefan Ivanovic/Pixsell/MB Media/Getty Images Fór afar lítið fyrir honum en átti flotta stoðsendingu í öðru marki Íslands. Guðlaugur Victor Pálsson [6], kom inn á fyrir Aron Einar á 18. mínútu Ekkert út á hans frammistöðu að setja. Leysti erfitt verkefni vel. Mikael Egill Ellertsson [7], kom inn á fyrir Jón Dag á 68. mínútu Frábær innkoma, gaf stoðsendingu eftir aðeins örfáar mínútur inni á vellinum. Hefði verið hægt að skjóta í fljótfærni en dempaði boltann frekar fyrir Orra sem var í betra færi. Fékk fína hlaupabraut og slapp næstum því einn í gegn í uppbótartíma en tókst ekki alveg að sleppa frá varnarmanni. Maður leiksins - Ísak Bergmann Jóhannesson [8], kom inn á fyrir Stefán Teit á 68. mínútu Var settur inn til að glæða sóknarleik liðsins nýju lífi og gerði það stórvel. Ógnaði með hlaupum fram á við og skapaði mikla hættu. Var maðurinn sem leitað var að í fyrsta marki Íslands, þó boltinn hafi ekki ratað til hans þá. Kom sér síðan í annað frábært færi og skoraði úr því rétt áður en leiknum lauk. Gjörbreytti leiknum með sinni innkomu og er vel að valinu kominn. Willum Þór Willumsson kom inn á fyrir Orra Stein á 90. mínútu Spilaði of lítið til að fá einkunn.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Fleiri fréttir Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Sjá meira