Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. nóvember 2024 11:31 Aðdáendur kepptust við að fá myndir af sér með félögunum í Iceguys. Í gær fór fram forsýning á hinum vinsælu þáttum IceGuys en yfir áttahundruð manns mættu í Smárabíó þar sem fyrstu tveir þættirnir voru sýndir í heilum þremur bíósölum. Að sögn framleiðenda var mikil gleði og spenna í loftinu og augljóst að hér var um að ræða viðburð sem enginn vildi missa af.
Í gær fór fram forsýning á hinum vinsælu þáttum IceGuys en yfir áttahundruð manns mættu í Smárabíó þar sem fyrstu tveir þættirnir voru sýndir í heilum þremur bíósölum. Að sögn framleiðenda var mikil gleði og spenna í loftinu og augljóst að hér var um að ræða viðburð sem enginn vildi missa af. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að það hafi verið létt stemmning í Smárabíói fyrir og eftir sýningu og vakti ísskúlptúr sérstaklega athygli bíógesta. Eins og alþjóð veit hafa strákarnir í Iceguys þeir Rúrik, Herra Hnetusmjör, Friðrik Dór, Jón Jónsson og Aron Can komið, séð og sigrað en þeir rokseldu á jólatónleika nú um jólin svo fátt eitt sé nefnt. Meðal gesta sem létu sjá sig var Simmi Vill, Birgitta Haukdal, Pálmi Gestsson, Helga Möller og Sverrir Þór Sverrisson svo fáeinir séu nefndir. Hannes Þór Halldórsson leikstjóri þáttanna segir framleiðendur afskaplega þakkláta fyrir góðu viðbrögðin á forsýningunni. „Samstarf allra sem að þessum þáttum koma, bæði IceGuys sjálfum og öllu fólkinu bak við tjöldin og hjá Símanum hefur verið upp á tíu. Loksins munu þættirnir sjást í stofum landsmanna og ég vona að gleðin og fjörið sem fylgdi framleiðslunni skili sér beint þangað.“ María Björk Einarsdóttir forstjóri Símans segir um að ræða stærstu forsýningu í sögu Símans. Önnur ísöld sé að hefjast, viðskiptavinir Símans megi eiga von á góðu á sunnudag þegar fyrsti þátturinn fer í loftið. Umboðsmaður Iceguys, Mollý nú eða Sandra Barilli og Gísli Örn Garðarsson. Iceguys ná til allra aldurshópa. Aron Can, Herra Hnetusmjör og Frikki Dór. Knús! Helga Möller með bros á vor. Nóg af fólki. Pattra Sriyanonge og Theodór Elmar Bjarnason mættu með sinn allra besta. Nablinn lét sig ekki vanta. Hannes Þór himinlifandi á rauða dreglinum. Einn fyndnasti maður landsins Sveppi krull reytti líklega af sér brandarana. Eva Ruza hefur aldrei verið eitthvað annað en hress. Friðrik Ómar í besta félagsskapnum. Fjölskyldur landsins flykktust á Iceguys. Ekki að furða. Pálmi Gestsson einn ástsælasti gamanleikari þjóðarinnar var í stuði. Hannes Þór ávarpaði margmennið fyrir sýningu.
Samkvæmislífið Bíó og sjónvarp Mest lesið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Salka Sól látin fara Lífið Fleiri fréttir Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira