Bournemouth lyfti sér upp fyrir Tottenham og í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri í leik liðanna í kvöld. Lokatölur á Vitality leikvanginum, 1-0.
Bournemouth hefur verið sterkt á heimavelli í vetur en auk Tottenham hefur liðið unnið heimasigra á Manchester City og Arsenal.
Tottenham er í 10. sæti deildarinnar en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum sínum.
Dean Huijsen skoraði eina mark leiksins í kvöld. Á 17. mínútu skallaði þessi nítján ára Spánverji hornspyrnu Marcus Tavernier í netið.
Þrátt fyrir að hafa nægan tíma til að jafna gerðu gestirnir sig sjaldan líklega. Heimamenn voru hættulegri aðilinn og áttu meðal annars átta skot á markið.