Fjöldi frægra Hollywood-fígúra hefur verið tengdur við kynsvallsveislur sem Diddy hélt reglulega undanfarna áratugi þar sem konum á að hafa verið byrlað ólyfjan og þeim nauðgað.
Sjá einnig: Jay-Z kærður fyrir að nauðga þrettán ára stúlku
Nú síðast í vikunni var rapparinn Jay-Z kærður fyrir að nauðga þrettán ára stúlku með Diddy árið 2000. Atviksins var getið í máli Combs fyrr á árinu en þá var nöfnum tveggja þekktra einstaklinga haldið leyndum. Málsskjölin voru síðan uppfærð og Carter nefndur sem hinn maðurinn sem nauðgaði stúlkunni.
Kominn með nóg af bröndurum og meme-um
Því hefur verið haldið fram að urmull Hollywood-stjarna hafi tekið þátt í svallveislum Diddy og að enn eigi einhverjar upplýsingar eftir að koma upp á yfirborðið. Gamlar myndir hafa verið dregnar fram af hinum og þessum með Diddy, nú síðast af hinum 56 ára Will Smith.
Það hefur greinilega ekki farið framhjá Smith sem stöðvaði uppistand sitt í San Diego á fimmtudag til að svara fyrir orðróm um tengsl sín við Diddy.

„Heimurinn sem við lifum í núna, það er mjög erfitt fyrir ykkur að greina hvað er raunverulegt og hvað er satt, ekki satt?“ spurði Smith áhorfendur. Hann sagðist síðan hafa séð brandara og „meme“ fólks á netinu um tengsl sín við Diddy, sumt af því væri mjög fyndið.
„Ég hef ekki rættt um neitt af þessu opinberlega en ég vil bara segja það mjög skýrt: Ég hef ekkert að gera með Puffy, svo þið gætt hætt öllum þessum meme-um. Þið getið hætt öllu þessu bulli,“ sagði hann svo.
„Ég hef ekki komið nálægt þessum manni, ekki gert neitt af þessu heimska rugli. Svo hvenær sem þið heyrið það, ef einhver segir það, þá er það fjandans lygi.“
Sífellt fleiri stíga fram
Diddy hefur verið ákærður fyrir skipulagða glæpastarfsemi og mansal og bíður réttarhalda sinna, sem munu fara fram 5. maí 2025, í fangelsi í Brooklyn. Hann hefur neitað öllum ásökunum.
Eftir að Cassie Ventura, fyrrverandi kærasta Diddy stefndi honum í nóvember í fyrra hefur fjöldi meintra fórnarlamba hans stigið fram og stefnt rapparanum fyrir kynferðisofbeldi. Fréttastofu telst til að í hið minnsta fjórtán manns hafi stefnt rapparanum fyrir meint kynferðisofbeldi.
Nú síðast í vikunni sökuðu þrír menn Combs um að hafa byrlað þeim ólyfjan og nauðgað þeim. Atvikin eru sögð hafa átt sér stað á árunum 2019 til 2022 í partýum Combs. Kærurnar þrjár bætast við lista af 30 einkamálum sem hafa verið höfðuð gegn rapparanum.
Fyrir í mánuðinum höfðaði tískuhönnuðurinn Bryana „Bana“ Bongolan mál á hendur Combs þar sem hún sakaði hann meðal annars um að hafa ógnað lífi sínu með því að láta hana hanga fram af svölum.