Iceguys með opna búð og árita bókina Iceguys 20. desember 2024 13:29 Vinsældir Iceguys hafa verið með ólíkindum og loka þurfti búðinni í Kringlunni í tvo daga svo hægt yrði að fylla á vörur. Róbert Arnar Iceguys munu árita IceGuys bókina í Iceguys búðinni í Kringlunni á morgun milli klukkan 12 og 13. Búið er að opna búðina aftur en loka þurfti í tvo daga þegar allar hillur tæmdust. Jón Jónsson segir stemmninguna í kringum hljómsveitina ævintýralega.
Iceguys bókin er til sölu í Iceguys búðinni í Kringlunni, í Hagkaup og Pennanum. „Við erum svo heppin, öll sem komum að þessu en allt þetta ævintýri hefur verið keyrt áfram af gleði og einstökum sköpunarkrafti. Út af stemmingunni varð salan miklu meiri en við áttum von á. Þá var bara að bretta um ermar, endurskipuleggja lagerinn og sækja nýjar vörur og nú er búið að opna á ný. Við ætlum að árita bækur og boli og bara allt sem fólk vill að við áritum,” segir Jón. Ástsælasta strákaband landsins Vinsældir Iceguys hafa verið með ólíkindum og sýndu nýafstaðnir tónleikar sveitarinnar það svo um munaði, þeir fylltu Laugardalshöll fimm sinnum á tveimur dögum. Jón þakkar vinsældirnar jákvæðri orku í hópnum og því að enginn taki sig of alvarlega, sem hafi kannski einmitt komið fólki hvað mest á óvart. Hljómsveitin mun árita Iceguys bókina á morgun, laugardag, í Kringlunni milli klukkan 12 og 13.Róbert Arnar „Fólk hélt að það væri að fara að horfa á lélegustu sjálfshátíði í heimi en í staðinn fékk það að sjá virkilega vandaða dagsrkárgerð og okkur gera grin að okkur sjálfum og ýmsu í íslenskri poppmenningu sem fólk gat tengt við. Sveitin fyllti Laugardalshöll fimm sinnum á tveimur dögum um liðna helgi.Ólafur Hannesson Tónleikarnir síðustu helgi voru sannarlega hápunkturinn,” segir Jón. Þá hafi leikhæfileikar hópsins komið skemmtilega á óvart. „Þetta átti bara að vera eitt tónlistarmyndand sumarið 2023 og þegar ég sendi á þessa stráka vissi ég ekkert að við ættum eftir að þurfa að dansa svona mikið, semja svona mikið og hvað þá leika svona mikið. En það hefur verið virkilega fallegt að sjá til dæmis Árna Pál og Aron taka þvílíkum framförum í leiklist. Rúrik er náttúrlega að leika í þýskum Netflixmyndum og við verðum bara að reyna að njóta þess að hafa hann meðan við getum,” segir Jón. Árni Páll og Aron Can sýndu mikla leikslistarhæfileika í sjónvarpsseríunum um Iceguys.Róbert Arnar En er verkefnið að taka stífari stefnu nú þegar búið er að opna búð og gefa út bók og prenta á boli í massavís? „Ég held að um leið og við værum farin að hugsa þetta sem fyrirtæki yrði þetta hundleiðinlegt. Búðin var bara stofnuð því það vantaði stað fyrir fólk til að sækja armbönd fyrir tónleika. Svo er bókin bara partur af því að spila leikinn, hún er ekki til þess að vinna íslensku bókmenntaverðlaunin. Þetta er allt til að auðga líf þeirra sem vilja njóta tónlistarinnar,” segir Jón, gleðin sé enn við völd í hópnum og enginn rígur né drama milli manna. „Þetta er bara eins og í fótboltanum, bara high fives og faðmlög. Það hjálpar að allir eru með sinn eigin feril, Iceguys er meira bara eins og árshátíð. Um leið og þetta fer að kólna stekk ég frá borði,” segir Jón. "Bara high fives og faðmlög" - einstök vinátta einkennir Iceguys.Róbert Arnar
Tónlist Menning Mest lesið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Lífið Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Lífið Fleiri fréttir Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Sjá meira