Sport

Dag­skráin í dag: Ís­lands­meistarar og fót­bolti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Keflavík varð Íslandsmeistari kvenna í körfubolta í vor.
Keflavík varð Íslandsmeistari kvenna í körfubolta í vor. Vísir/Diego

Íþróttalífið er heldur betur að vakna eftir stutt jólafrí og boðið verður upp á þrjár beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 og Vodafone, ásamt því að annar þátturinn í seríunni Íslandsmeistarar fer í loftið.

Við hefjum leik í ensku B-deildinni þar sem þrír leikir verða í beinni útsendingu á Vodafone Sport. Coventry tekur á móti Plymouth klukkan 14:50, klukkan 17:20 hefst bein útsending frá viðureign Derby og WBA og klukkan 19:50 eigast Stoke og Leeds við.

Klukkan 20:00 er svo komið að öðrum þætti í seríunni Íslandsmeistarar. Í gær, jóladag, var karlaliði Breiðabliks í knattspyrnu fylgt eftir, en í kvöld er komið að kvennaliði Keflavíkur í körfubolta.

Þá fylgir Viaplay einnig með áskrift að Sportpakkanum og í dag má þar finna beinar útsendingar frá leikjum í skosku úrvalsdeildinni í fótbolta, ensku B- og C-deildunum, ruðningi og þýska handboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×