Samstarf

Góð kjör á af­mælissýningu Toyota

Toyota á Íslandi
Toyota byrjar nýja árið með sýningu á morgun laugardag en þar verða boðnir 60 raf- og Plug-in Hybrid bílar á ótrúlegu verði, hvort sem bíllinn er keyptur eða tekinn í Kinto One langtímaleigu.
Toyota byrjar nýja árið með sýningu á morgun laugardag en þar verða boðnir 60 raf- og Plug-in Hybrid bílar á ótrúlegu verði, hvort sem bíllinn er keyptur eða tekinn í Kinto One langtímaleigu.

Bílaárið 2025 byrjar með krafti hjá Toyota með sýningu á morgun, laugardaginn 11. janúar.

Á sýningunni verða boðnir 60 raf- og Plug-in Hybrid bílar á ótrúlegu verði í tilefni þess að 60 ár eru síðan fyrsti Toyota bíllinn var fluttur til landsins. Góð kjör bjóðast hvort sem bíllinn er keyptur eða tekinn í KINTO One langtímaleigu.

„Á sýningunni á morgun munum við kynna einstök verð á langtímaleigu á Toyota og Lexus bílum,“ segir Haukur Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri KINTO. „Við leggjum sérstaklega áherslu á vistvæna bíla, rafmagns- og tengiltvinnbíla. Ég hvet fólk eindregið til þess að kíkja við og prufukeyra Toyota bZ4X ef það hefur ekki gert það nú þegar enda eru aksturseiginleikarnir stórkostlegir.“

„Á sýningunni á morgun munum við kynna einstök verð á langtímaleigu á Toyota og Lexus bílum,“ segir Haukur Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri KINTO.Mynd/Toyota á Íslandi.

Hann segir starfsfólk KINTO hafa fundið það sífellt meir undanfarið að margir eru að velta fyrir sér langtímaleigu á bílum. „Ég hvet því þann hóp til að kíkja við hjá söluaðilum Toyota um helgina og taka spjallið, það gæti margborgað sig. Þessi þróun er í samræmi við það sem er að gerast víða um heim. Það sést m.a. í Norður Ameríku og Evrópu á síðustu 5-10 árum að fleiri vilja nýta sér langtímaleigu en ég mundi segja að helstu kosturinn við það fyrirkomulag séu aukin þægindi.“

Í langtímaleigu veit fólk nefnilega hversu lengi það hefur bílinn og hvað hann mun kosta á þeim tíma. „Það fylgir því mikil hugarró að þurfa ekki að hugsa út í þá hluti sem fylgir því að eiga bíl, svo sem bifreiðagjöld, tryggingar, afskriftir, dekk, þjónustu og viðhald. Þú mætir bara með bílinn á réttum tíma í þjónustu og fyllir hann af orku, hvort sem það er rafmagn, bensín eða dísel, við sjáum um rest. Það að keyra um á nýjum bíl hefur aldrei verið einfaldara.“

Hjá KINTO er hægt að leigja allar tegundir af Toyota og Lexus bílum til 12, 24 eða 36 mánaða.Mynd/Toyota á Íslandi.

Hjá KINTO er hægt að leigja allar tegundir af Toyota og Lexus bílum til 12, 24 eða 36 mánaða. „Innifalið í leigunni eru bifreiðagjöld, tryggingar, þjónusta, dekk, bifreiðagjöld og 20.000 km akstur á ári. Í raun allt nema orkugjafinn og rúðuvökvi,“ segir Haukur að lokum.

Toyota tekur vel á móti gestum á laugardag kl. 12 - 16 hjá viðurkenndum söluaðilum í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×