Handbolti

Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stór­sigri á gömlu fé­lögunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Díana Dögg Magnúsdóttir er í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta og var með á Evrópumótinu í desember.
Díana Dögg Magnúsdóttir er í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta og var með á Evrópumótinu í desember. Vísir/Hulda Margrét

Díana Dögg Magnúsdóttir og félagar hennar í Blomberg-Lippe unnu öruggan heimasigur í þýsku deildinni í kvöld.

Blomberg-Lippe vann þá ellefu marka sigur á BSV Sachsen Zwickau, 31-20, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12-10.

Díana var þarna að mæta sínum gömlu félögum en hún spilaði með Zwickau í fjögur ár og var fyrirliði liðsins undir lokin.

Díana klikkaði á fyrstu tveimur skotum sínum en skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum.

Hún kom alls að fjórum mörkum því hún átti einnig tvær stoðsendingar á liðsfélaga sína.

Blomberg-Lippe hefur unnið tvo fyrstu leiki ársins og er í fjórða sæti deildarinnar með fimmtán stig úr tólf leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×