Tíska og hönnun

Patrik í hálfrar milljón króna skíða­galla

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Patrik veit hvað hann syngur þegar kemur að nýjustu tísku.
Patrik veit hvað hann syngur þegar kemur að nýjustu tísku.

Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, jafnan þekktur sem Prettyboitjokkó, er á skíðum í í Selva á Ítalíu ásamt fjölskyldu sinni og kærustunni, Friðþóru Sigurjónsdóttur.

Patrik er annálaður smekkmaður þegar kemur að fatavali og hefur mikinn áhuga á tísku, sérstaklega þegar kemur að dýrum merkja- og hönnunarvörum. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að hann klæðist rándýrum útivistarfötum þegar hann þeysist niður brekkur ítölsku Alpanna. 

Patrik birti mynd af sér á samfélagsmiðlum í skíðafötum frá ítalska lífstíls- og útivistarmerkinu Moncler.

Dúnúlpan er ljósbrún að lit með hettu og kostar 2300 bandaríkjadali, eða um 325 þúsund íslenskar krónur miðað við núverandi gengi.

Skíðabuxurnar eru dökkbrúnar með renndum vösum og kosta 1330 bandaríkjadollara, eða um 188 þúsund íslenskar krónur.

https://www.farfetch.com/
https://www.farfetch.com/

Moncler var stofnað árið 1952 í litlu fjallaþorpi nálægt Grenoble í suðurhluta Frakklands, en er nú með höfuðstöðvar á Ítalíu. Merkið er þekkt fyrir stílhreina og glæsilega hönnun og hefur notið mikilla vinsælda víða um heim þvert á alla aldurshópa, þá helst fyrir dúnúlpur í glansandi nylon efni.

Patrik deildi myndbandi af sér á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann tekur sig vel út í dressinu. Hann er með einstakan skíðastíl og nýtur lífsins í fjallshlíðunum. 

@prettyboitjokkoo

Rateaðu stílinn 🎿

♬ Annan Hring - PATR!K & Herbert Guðmundsson & Bomarz





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.