Sport

Sá elsti til að vinna á ATP-mótaröðinni og sló met Federer

Smári Jökull Jónsson skrifar
Monfils með verðlaunin sem hann hlaut fyrir sigurinn í Auckland, meðal annars forláta spjót.
Monfils með verðlaunin sem hann hlaut fyrir sigurinn í Auckland, meðal annars forláta spjót. Vísir/Getty

Bestu tennisspilarar heims eru á fullu í undirbúningi fyrir Opna ástralska meistaramótið sem hefst í dag en mótið er eitt af fjórum risamótum ársins. Frakkinn Gael Monfils mætir heitur til leiks eftir sigur á móti í Auckland í dag.

Opna ástralska meistaramótið í tennis hefst í Melbourne í dag en mótið er eitt af fjórum risamótum ársins. Bestu leikmennirnir hafa verið á fullu í undirbúningi fyrir mótið en Jannik Sinner er langefstur á heimslista karla fyrir mótið en Aryna Sabalenka er efst kvennamegin. 

Frakkinn Gael Monfils er líklega ekki sá sem flestir búast við miklum afrekum af en hann er í 52. sæti heimslistans. Monfils skráði sig engu að síður í sögubækurnar í dag.

Hann bar þá sigur úr býtum á móti á ATP-mótaröðinni í Auckland í Nýja-Sjálandi. Hinn 38 ára gamli Monfils varð með sigrinum elsti leikmaður sögunnar til að vinna sigur á móti á mótaröðinni en hann sló met goðsagnarinnar Roger Federer. Federer var tveimur mánuðum yngri en Monfils er núna þegar hann vann sitt síðasta mót árið 2019.

Monfils hefur þrettán sinnum unnið sigur á ATP-mótaröðinni en hann vann sinn fyrsta sigur fyrir tuttugu árum. Hann hefur þó aldrei unnið sigur á risamóti en komist í undanúrslit bæði á Opna franska og Opna bandaríska meistaramótinu.

„Það er mjög sérstakt að ná þessum þrettánda titli. Ég vinn ekki það oft. Ég er búinn að spila í meira en tuttugu ár og aðeins unnið þrettán sinnum.“

„Maður er alltaf ánægður að ná meti en mig langar að gera meira. Mig langar að spila lengur og hví ekki að vinna annan titil einhvern tíman seinna,“ sagði Monfils eftir sigurinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×