Innlent

Ragn­heiður Torfa­dóttir er látin

Atli Ísleifsson skrifar
Ragnheiður Torfadóttir gegndi stöðu rektors Menntaskólans í Reykjavík á árunum 1995 til 2001.
Ragnheiður Torfadóttir gegndi stöðu rektors Menntaskólans í Reykjavík á árunum 1995 til 2001. Landbúnaðarháskólinn

Ragnheiður Torfadóttir, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík, er látin, 87 ára að aldri. Hún varð rektors skólans árið 1995, fyrst kvenna, og gegndi stöðunni til ársins 2001.

Greint er frá andláti hennar í Morgunblaðinu í dag, en hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi síðastliðinn sunnudag.

Ragnheiður fæddist 1. maí 1937 á Ísafirði en flutti til Reykjavíkur með fjölskyldu sinni sex ára að aldri. Foreldrar Ragnheiðar voru Torfi Hjartarson, tollstjóri í Reykjavík og sáttasemjari ríkisins, og Anna Jónsdóttir.

Í æviágripi Ragnheiðar segir að hún hafi lokið stúdentsprófi frá MR árið 1956, BA-prófi í latínu og grísku frá Háskóla Íslands árið 1961 og prófi í uppeldis- og kennslufræðum árið 1971. Síðar stundaði hún einnig nám í íslenskri málfræði og málvísindum.

Ragnheiður kenndi latínu við MR á árunum 1959 til 1960 og aftur 1962 til 1996, en sömuleiðis grísku á árunum 1972 til 1975.

Hún var deildarstjóri við skólann 1972 til 1992, sat í skólastjórn 1976 til 1978 og fulltrúi kennara í skólanefnd skólans 1990 til 1995. Hún tók svo við stöðu rektors skólans 1995 og gegndi stöðunni til 2001.

Ragnheiður var einnig virk í félagsstörfum og var varaformaður Bandalags háskólamanna 1982 til 1986 og í ritstjórn BHM-blaðsins á sama tíma. Þá var hún félagi í Rótarýklúbbi Reykjavíkur.

Eig­inmaður Ragn­heiðar var Þór­hall­ur Vil­mund­ar­son, pró­fess­or við Há­skóla Íslands og for­stöðumaður Örnefna­stofn­un­ar. Hann lést árið 2013. Ragnheiður og Þórhallur eignuðust þrjú börn, þau Guðrúnu, dós­ent í ís­lenskri mál­fræði við HÍ, Torfa, doktor í tölvu­sjón og lektor við HR, og Helga, bygg­ing­ar­verk­fræðing­.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×