Lífið

Rakel María hætt komin: „Þið verðið drepin ef þið farið þarna upp“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Rakel María og Guðmundur eru á ferðalagi um Suður-Ameríku.
Rakel María og Guðmundur eru á ferðalagi um Suður-Ameríku.

Rakel María Hjaltadóttir, hlaupari og förðunarfræðingur, er stödd í fríi í Cartagena í Kólumbíu, ásamt kærasta sínum Guðmundi Lúther Hall­gríms­syni, stafræns markaðsstjóra hjá Bláa Lóninu. Parið var á leið inn á eitt hættulegasta svæði borgarinnar í gærmorgun þegar hópur manna á mótorhjólum skipaði þeim að snúa við.

Rakel María greinir frá atviknu í hringrásinni (e.story) á Instagram. Rakel er einn af þekktari hlaupurum landsins en það vakti gríðarlega athygli þegar hún rann í hálku í Bakgarðshlaupinu í vetur og varð að leita sér aðstoðar á slysó. 

Á Instagram segist Rakel hafa ætlað að hlaupa ein þennan dag, þar sem hún var orðin nokkuð örugg með sig eftir fjóra daga í borginni. Hún segist hafa reynt að sannfæra Guðmund um að það væri í lagi, en hann vildi ekki hleypa henni út einni og þau fóru því saman.

„Gummi vill ekki hleypa mér einni út að hlaupa hérna af því að hann treystir mér ekki. Mjög skrítið,“ segir Rakel og bætir við kímin: „Aumingja maðurinn er alltaf með mér í öll hlaup. Auðvitað bestur.“

Rakel María og Guðmundur á leið út að hlaupa um Cartagena.

 Rakel segist hafa fundið grænt svæði með upphækkun á Google-maps og hugsað sér gott til glóðarinnar, enda líklega frábær útsýnisstaður yfir borgina og ætlaði þangað upp eins og hún lýsir því. 

„Við fundum að við vorum komin út fyrir túristasvæðið og umhverfið var aðeins farið að breytast,“ segir Rakel.

„Þá er þar einhver klíka á mótorhjólum sem segir við Gumma að við verðum að snúa við megum ekki fara þarna upp: „Þetta er hættulegasta svæði borgarinnar, þið verðið drepin ef þið farið þarna upp. komið til baka!“ Svo stoppar leigubíll sem keyrir fram hjá, maðurin sem er aftur í talar ensku og segir, þetta er mjög hættulegt svæði!“ segir Rakel skelfd en fegin.

„Ég kom okkur bara næstum því í lífshættu!“ segir Rakel en ljóst er að hún hefur húmor fyrir öllu saman, enda þekkt fyrir að njóta lífsins í hvívetna. 

Þau Guðmundur hafa látið gríðarlega vel af sér í Kólumbíu síðastliðna daga, birt myndir af gómsætum mat sem þau segja vera þann besta sem þau hafi smakkað. 

Parið er á mánaðar ferðalagi um Suður-Ameríku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.