Tveir Íslendingar voru í byrjunarliði Venezia sem gerði 1-1 jafntefli við Parma á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.
Bjarki Steinn Bjarkason fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Venezia í deildarleik í dag. Mikael Egill Ellertsson var sömuleiðis í byrjunarliðinu hjá Feneyingum.
Joel Pohjanpalo kom Venezia yfir með marki úr vítaspyrnu á 20. mínútu en Hernani jafnaði fyrir Parma úr öðru víti á 56. mínútu.
Bjarki var tekinn af velli á 76. mínútu en Mikael lék allan leikinn fyrir Venezia sem hefur ekki enn unnið útisigur á tímabilinu.
Venezia er í nítjánda og næstneðsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Parma er í 15. sætinu með tuttugu stig.