Fótbolti

Gylfi sár­kvalinn: Missti andann og fer í mynda­töku

Sindri Sverrisson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson lá sárkvalinn eftir að hann meiddist í lok leiksins við Búlgaríu í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson lá sárkvalinn eftir að hann meiddist í lok leiksins við Búlgaríu í dag. Sýn Sport

Arnar Gunnlaugsson segir útlitið ekki gott varðandi Gylfa Þór Sigurðsson sem fékk högg á rifbeinin og lá eftir sárkvalinn undir lok leiksins við Búlgaríu á Laugardalsvelli í dag.

Ísland vann leikinn 3-0 og er með sjö stig á toppi síns riðils í C-deildinni fyrir leikinn við Eistland í Tallinn á þriðjudag.

Ólíklegt verður að teljast að Gylfi geti spilað þann leik eftir að hann meiddist í uppbótartíma í dag, eftir högg frá Petko Panayotov leikmanni Búlgaríu. Höggið má sjá hér að neðan.

Klippa: Gylfi meiddist gegn Búlgaríu

„Þetta lítur ekki vel út,“ sagði Arnar um stöðuna á Gylfa eftir leik en Gylfi varð að fara af velli og gat ekki klárað leikinn.

„Hann missti aðeins andann, fer í myndatöku núna og við sjáum hvernig það þróast. Þetta eru rifbeinin og vonandi er ekkert brotið eða slíkt. Við bíðum bara og sjáum,“ sagði Arnar.

Eins og fyrr segir er nú framundan toppslagur við Eistland á þriðjudagskvöld því Eistar unnu Lúxemborg 1-0 í dag og eru með fimm stig, tveimur stigum á eftir Íslandi.

„Það stefnir í gríðarlega skemmtilegan leik í Eistlandi núna. Við þurfum að jafna okkur núna, þetta hefur verið löng og skemmtileg törn en með sigri þar getum við komið okkur í ansi þægilega stöðu fyrir nóvembergluggann,“ sagði Arnar.


Tengdar fréttir

„Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“

„Þetta var sterkur sigur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir annan 3-0 sigur Íslands í röð. Liðið vann Búlgaríu í dag á Laugardalsvelli og er efst í sínum riðli með sjö stig eftir þrjá leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ein­kunnir Ís­lands: Orri Steinn og Há­kon Arnar báru af

Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson báru af í 3-0 sigri Íslands á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Sá fyrrnefndi brenndi þó af vítaspyrnu undir lok leiks og náði því ekki að fullkomna þrennuna.

„Lærði bara mikilvæga reglu“

„Þetta var drulluskemmtilegt. Gaman að spila á Laugardalsvelli með svona mikið af fólki og strákarnir í gírnum. Þetta var geggjað,“ sagði Orri Steinn Óskarsson eftir frábæra frammistöðu í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag.

Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu

Orri Steinn Óskarsson var í ham í 3-0 sigri Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×